Komin heim...:)
Jæja ég ákvað að skrifa nokkrar línur svona til að fólk gefist ekki alveg upp á þessu bloggi mínu... jámms ég er semsagt eins og alþjóð veit búin að vera veik síðustu 7 vikurnar... Ég fékk þessar dýrindis heilabólgur og var bara nær dauða en lífi... En ég náði mér á strik og eftir tvær vikur á Grensás í endurhæfingu var ég talin vera nógu hress til að komast heim.
Það var engin smá hamingja að komast heim maður... hitta dóttur mína og geta bara verið með henni... En að komast uppúr þessum veikindum er ekkert auðvelt og mun greinilega taka mjög langan tíma... fyrst eftir að ég kom heim var ég að deyja úr ógleði og viðbjóði en svo fékk ég magabólgutöflur og það er farið að mestu... er svoldið óglatt á morgnana (neibb ekki ólétt - ekki nema eftir Guð þá).
En þegar því var lokið kom sviminn... hann er ennþá þessi elska og vill ekki fara... Það er næstum jafn pirrandi og ógleðin nema ég get kannski gert aðeins meira... Þegar mig fer að svima fæ ég höfuðverk og þegar ég fæ höfuðverk fer mér að verða óglatt... jei... svona er einmitt dagurinn búinn að vera í dag, helvítis hausverkur og ógleði... ekki gaman.
Það sem ég hef lært líka í þessum veikindum að jákvæðni er allt!!! Maður er svo fljótur að sökkva sér niður í sjálfsvorkun og neikvæðni að það er ótrúlegt... ég verð lengi að laga mig andlega eftir þetta, ég er líka svo hrædd um að verða aftur veik, þ.e. gera eitthvað vitlaust svo ég veikist aftur. ég verð lengi að koma mér í að vera róleg og sjá að ég verð ekki veik aftur. En ég er i því þessa dagana að reyna að styrkja mig, bæði andlega og líkamlega. Ég fer á hverjum degi til Mikka á göngubretti og í tækin og finn strax mun á mér, aðeins eftir eina viku...
Ég bið að heilsa í bili, en já ég er allavega komin heim og ekki lengur eins veik og eg var, þetta kemur allt ;)
Viðtal 3
Næsti viðmælandi minn er stórbóndi hérna í héraðinu...

- 1. Þú munt heita hvað? Og hverra manna ertu og hvaðan?
Gunnar Þorgeirsson, undan pabba og mömmu, Efri-Fitjum í FITJÁRDAL.
- 2. Þú ert með tonn af sauðfé ekki satt? Hvað eru skjáturnar margar?
64,5 tonn af sauðfé en í tölu eru þær um 810
- 3. Hverjar eru þínar aðaláherslur í sauðfjárræktinni?
Rækta fallegar og góðar kindur
- 4. Talarðu oft við rollurnar þínar? Og ef svo er, um hvað spjallið þið?
Já á hverjum degi og oft á dag, góðan daginn og kveð þær að kveldi
- 5. Hvað er það klaufalegasta sem hefur komið fyrir þig þegar þú ert í glasi?
Datt og fékk tvo skurði á höfuðið eftir velheppnað fyrsta partý hjá liði 3 sannaðist þar málshátturinn að fall er farar heill
- 6. Ertu trúaður? Af hverju (eða ekki)?
Trúi á Íslensku sauðkindina hún hefur fætt okkur og klætt í gegnum árin og það ber að þakka
- 7. Er ekki leiðinlegt að vera alltaf að sæða beljur? Hvernig datt þér í hug að koma þér í þetta starf?
Nei alveg magnað, til að hitta menn
- 8. Á skalanum 1 til 10 hversu hot er ég? Af hverju segirðu það?
Þú færð 5 bara fyrir það að vera kvenmaður, svo + 2 fyrir að vera sveitakerling, + 2 fyrir að hafa áhuga á íslensku sauðkindinni, + aðrir 2 fyrir að vera í 2good liðinu og tapa fyrir liði 3 Víði-og Fitjárdal. Þannig Eydís þú ert svakalega hott
- 9. Hvernig stendurðu í stjórnmálum? Hvaða flokk aðhyllist þú og af hverju?
Miðjumaður. Borgarabyltingu Bjargar Sigurðar, hef verið veikur fyrir búsáhöldum í gegnum tíðina.
- 10. Hér á eftir koma þrír málshættir. Komdu með þín túlkun á þessum málsháttum.
# Illu er best ólokið. = Borgar sig ekki að búa til vandræði
# Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni. = þyrstur maður þarf að drekka
# Bændur eru bændum verstir og neytendum líka. = bull
# Að vera annar er ekki til skammar. = Þeir sem eru ekki fæddir sigurvegarar verða að sætta sig við að vera í öðru sæti.
Viðtal 2

Annar viðmælandi minn er hún Sæa mín...

1. Hvað heitirðu og hverra manna ertu?
Foreldrar mínir eru Sigvaldi frá á Dalvík og Sigurlaug frá Kálfshamarsvík. Pabbi er sonur Sigurveigar frá Kóngsstöðum í Svarfaðardal og Jóns úr Svarfaðardal. Mamma er dóttir Margrétar Pálsdóttur ... undan Kristínu frá Blómstuvöllum en þeir sem þekkja til á Kálfshamri hafa eflaust heyrt um hana Krístínu því meiri kvennskörug var vart hægt að finna. En ég er frá Laugarbakka í Miðfirði.
2. Hvar ert þú að vinna?
Nú já þegar stórt er spurt. Ég vinn í Grunnskólanum á Hvammstanga í 70% starfi og í íþróttamiðstöðinni aðra hverja helgi. Einnig sem stuðningsforeldri hjá félagsþjónustunni og persónulegur ráðgjafi (heitir það á launaseðli). Hef átt það til að taka eina og eina bar eða pizzuvakt hjá Kjartani á Síróp. Í augnablikinu er ég í vettvangsnámi í Hæfingarmiðstöðinni við Skógarlund á Akureyri og er búin þar í byrjun maí.
3. Ertu að læra eitthvað? Ef svo er, hvað ertu að læra og hvað ertu búin með mikið af því námi?
Ég er að læra í þroskaþjálfafræði við Kennaraháskólan sem síðar var Háskóli Reykjavíkur. Ég er á öðru ári. Planið er að útskrifast vorið 2010 en gæti lengst því ég bæti við mig rekstur og sjórnsýslu. Ekki það að ég ætli að vinna við rekstur en það væri eflaust gaman að læra það.
4. Nú ert þú mikill ferðafíkill, hvað hefurðu farið til margra landa? Hvaða land stendur uppúr að þínu mati?
Ég hef örlítið kíkt erlendis en stutt síðan það byrjaði sem sagt 1995 þá fór ég þessa venjulegu ferð til Benidorm og mér hefur aldrei leiðst eins mikið. Ferðamannaiðnaðurinn á þessum sólbaðströndum er ekki fyrir mig, að liggja í sólbaði á daginn og vera á diskótekunum á nóttunni. Nei takk. Ég er meira fyrir að skoða menningu og mannlíf, sögu og mat J
Eftir Spánarferðina skrapp ég til Færeyja sem er alveg frábær staður. Svo fór ég í tjaldútileigu um Þýskaland, Austurríki, Ítalíu, Frakkland. Mjög gaman. Eftir það var ég í Bandaríkjunum, aðallega að læra að stökkva, ferðuðumst aðallega um Florida. Svo fór ég í lestarferð um evrópu, þá var tekið England, Frakkland, Spánn, Mónakó, Ítalía, Grikkland, Austurríki, Sviss, Þýskaland, Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Belgía. Góður tími. Svo þvældist ég um Sri Lanka. Svo vinnutengt, Kanarí og fór með mömmu í verslunarferð til Halifax í Kanada. Með Ingibjörgu til Bandaríkjana í heilaaðgerðina. Heimsreisan var England, Indland, Tailand, Filippseyjar, Indonesia, Malasía, Ástralía, Nýja Sjáland, Bandaríkin, LA, Las Vegas, New York. Encenada í Mexico. Karbískahafið, Jamaica, Camon eyjar og Cozumel í Mexiko. Svo var það Afríkuferðin góða, Egyptaland, Kenya, Malawi, Tanzania, Zambia, Zimbabwe, Suður Afríka, Botswana. Svo er það ótal skreppitúrar til vinkvenna og manna í heiminum eins og Sviss, Spán, Köben, London svo eitthvað sé nefnt. Ég myndi helst vilja að búa á Nýja Sjálandi, sem er ekki ósvipað Íslandi nema bara allt er meira, stærri fjöll, fleiri kindur J
5. Nú átt þú gullfallegan, frekar óstýrilátan hund sem heitir Garpur. Hversu oft heldurðu að hann hafi stungið af frá þér? Hversu oft heldurðu að hann hafi æst móður mína upp?
Vóóó ef móðir þín er farin að grána (sem ég hef reyndar ekki hugmynd um) þá get ég verið viss um að það sé Garpi að kenna. Hann hefur nokkrum sinnum stungið mig af og oftar en ekki fer hann í heimsókn í Grafarkot en hann er allur að koma til kallinn enda orðin 7 ára. Ég sá myndina Marley and me og það var eins og ég væri að horfa á ævisögu Garps. Suddalega margt líkt með þeim tveim.
6. Nú ert þú hamingjusamlega „gift" honum Brynjari, hver eru framtíðaráform ykkar? Hvað ætlið þið að verða þegar þið verðið stór?
Við ætlum að verða enn stærri hehe, ég ætla að klára þroskaþjálfanámið og hann ætlar að halda sig við sjóinn hvort sem það verði langir eða stuttir túrar. Framtíðaráformin eru að hrúa niður börnum og rækta. Stækka íbúafjölda á Laugarbakka um einhver %. Kannski ekki alveg strax, það er verið að safna fyrir struparútu. En þegar við byrjum þá ætla ég að ropað út úr mér heillri þjóð.
7. Hver er afstaða þín til lífsins?
Njóta þess á meðan maður hefur heilsu. Fólk á að hætta að nurla peningunum undir koddann, allt í lagi að eiga varasjóð en endilega að gera allt sem þeim langar. Svo er alltaf best að koma fram við fólk eins og þú vilt að fólk komi fram við þig.
8. Á skalanum eitt til tíu, hversu hot er ég? Og af hverju segirðu það?
Á skalanum eitt til tíu... hmm þá verð ég að segja 9,5 og ástæða þess er að þú ert í flokki fallegustu kvenna sem ég hef séð, já og hitt. Svo líka svo dömuleg og gaman að fylgjast með þér á háum hælum hehe. Jákvæði og einlægt brosið bræðir hvern sem er.. ó mig auma ég er orðin væmin
9. Þú ert með próf í fallhlífarstökki, hvernig er tilfinningin að vera í loftinu með einungis fallhlíf til bjargar? Hvort er skemmtilegra, fallhlífarstökk eða teygjustökk?
Já eitt sinn útskrifaðis ég með AFF próf í fallhlífastökki í Deland í Florida. Og stökk 98 stökk bæði úr flugvélum og þyrlum. Það var góður tími.
Sú tilfinning er æði, vera frjáls eins og fuglinn og láta vindinn leika um þig... bara frábært. Í teygjustökki er maður fastur við einhverja teygju og þú ræðir ekki ferðinni eins og í fallhlífastökki svo þar að auki er þér kippt til baka, skemmtilegt kikk í smá stund en í fallhlífastökkinu ertu lengur að, það er flugvélin svo hoppa út og fellur þú niður á margra kílómetra hraða og endar svo í fallhlíf sem þú svífur í til jarðar og vonast eftir því að lendingin heppnist, annars gæti farið illa.
10. Hér koma þrír málshættir, hvernig myndir þú túlka þá?
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.
Oft eru ráðamenn ekki alveg réttu mennirnir í starfið, loðir við pólitíkusa
Oft er grafinn maður dáinn.
Hann yrði þá ekki lengi á lífi Dúddinn sem væri grafinn lifandi
Betri eru læti en ranglæti
Ranglæti er eitt af því ömulegasta sem til er ... þá er betra að hafa læti.
aaaaalveg að koma...
Viðtal...

Ég er orðin leið á því að hafa ekkert að segja svo að ég hef ákveðið að taka nokkur viðtöl við merkilegar manneskjur og leyfa ykkur að kynnast þeim aðeins...
Fyrst varð fyrir valinu vinkona mín hún Þóranna Másdóttir... Hún er að mínu mati alveg stórmerkileg kjarnorkukona... - 1. Hvað munt þú heita?
Þóranna Másdóttir
- 2. Hverra manna og hvaðan ertu?
Ég er undan Má frá Eyrabakka og Siggu frá Holti í Stokkseyrarhreppi. Már er undan Bjarney frá Hróarsholti og Ólafi frá Snæfokstöðum. Sigga er undan Herði frá Holti og Önnu Guðrúnu frá ................Ég er frá Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi hinum forna og núverandi Flóahreppi.
- 3. Það er stunduð hrossarækt þar er það ekki? Hver eru bestu hrossin sem komið hafa frá ykkur að þínu mati?
Jú þar er búið að stunda hrossarækt í 30 ár. Bestu hrossin mundi ég telja vera Sjóla sem var heimsmeistari í Danmörku árið 2005. Graðhesturinn Græðir undan Hróð frá Refstöðum. Svo merarnar Storka undan Kveik frá Miðsitju, Stemma undan Bassa frá Bakka, Auðlind undan Viking frá Voðmúlastöðum, Hemja undan Ham frá Þóroddsstöðum, Gróska undan Huga frá Hafsteinsstöðum, Sletta undan Hilmi frá Sauðárkróki Þetta mundi ég telja vera svona toppana.
- 4. Ef þú mættir velja 5 stóðhesta til að halda undir, hverjir yrðu fyrir valinu?
Úff þú segir nokkuð...Mér finnst Auður frá Lundum spennandi, sá hann á meistaradeildinni í fjórgangnum og þar var hann mjög flottur. Ég væri til í að halda undir Hróð frá Refstöðum, Adam frá Ásmundarstöðum, Dug frá Þúfu og svo væri ég til í að halda undir hann Hökul frá Dalbæ.
- 5. Hvað ert þú að gera í vetur?
Ég er að stunda nám við Landbúnaðarháskóla Íslands og er að nema Búfræði.
- 6. Hvað á svo að gera eftir skólann og hverju stefnirðu að í framtíðinni?
Í sumar ætla ég að vera að vinna í almennum bústörfum í Dalbæ. Langar voðalega að vera bóndi í framtíðinni. En annars er voðalega gott að taka bara fyrir einn dag í einu og sjá svo hvað framtíðin ber í skauti sér.
- 7. Hvort langar þig að búa í sveit eða borg/bæ? Og hvar viltu helst búa?
Ég vil búa í sveit og þar sem að mér líður best...suðurlandinu líklega.
- 8. Ef þú mættir velja einn stað í öllum heiminum, hvar myndirðu gifta þig?
Í Gaulverjabæjarkirkju.....ég er ekkert gamaldags ;)
- 9. Á skalanum eitt til tíu hversu hot er ég? Og af hverju segirðu það?
Þú ert svo góð í að setja ENGA pressu á mann, ég elska það.
Sko þú ert alveg flennifín stelpa og ert mjög myndarleg og þegar þú tekur þig til og hagar þér ekki eins og vitleysingur heldur eins og dama að þá nærðu alveg 8-9 leikandi...en annars ertu 7. Þannig að Eydís mín farðu að haga þér, sem þýðir hættu að pumpa lofti í brjóstin með þumlinum...það kemur hvort eð er ekkert loft úr honum ;)
- 10. Hérna koma þrír málshættir, hvernig myndir þú túlka þá?
1. Betri eru kynórar en tenórar.
Miklu skemmtilegra að sitja heima og hugsa um kynlíf heldur en að hlusta á einhverja tenóra syngja. En svo er auðvitað lang skemmtilegast að stunda bara kynlíf en ekki bara hugsa um það, það er að segja ef að farið er út í þá sálma J
2. Betra er að hlaupa í spik en kekki.
Tja ég veit nú ekki hvort er skárra en jú ætli að það sé ekki betra að vera smá spikaður heldur en í kekkjum.
3. Betra er áfengi en áfangi.
Mér finnst gott að taka þetta saman, ég er til dæmis núna í nokkrum áföngum í skólanum og drekk líka mikið áfengi og þetta hefur bara farið vel saman hingað til J
Alkóhól er deyfilyf sem gerir okkur kleift að þrauka lífið...
Bloggerí blogg
Núna eru börnin mín, Sara og Júlía farnar norður en ég fer ekki fyrr en á morgun. Ég hlakka geggjað til að fara norður á kagganum mínum sem ég var að kaupa og Elín mín ætlar að koma með mér og það verður sko fjör og ég gruna okkur um að taka eins og eitt til tvö lög á leiðinni.
Ritgerð í frumulíffræði er það sem bíður mín næstu klukkutímana, ég er að skrifa um stjórn á litnisbyggingu. Það er alveg ótrúlegt fjör skal ég ykkur segja.
Hei ein gleðifrétt - hmm allavega fyrir mig... ég komst í buksur sem ég keypti fyrir tveimur árum en hef aldrei passað í og þær voru barasta frekar víðar á mér, sérstaklega á rassi og lærum... þetta er mjög mikil hamingja hjá mér og styrkir mig enn meir í hættaðdrekkaátakinu... Það eru komnir 33 dagar í dag síðan ég hætti að drekka og er ég mjög stolt af sjálfri mér.
á morgun ætla ég að skella mér á borraþlót, eins og Sara kallar það, í Ásbyrgi. Það verður ábyggilega mikið stuð sko... En annars ætla ég að halda áfram að læra og bið kærlega að heilsa ykkur öllum...
Alveg að koma að því...
Annars er ég að reyna að jafna mig á fréttunum um hrossin á tjörninni... þetta er alveg svakalegt maður, sjá myndirnar, þau eru gjörsamlega búin á því greyið. Knaparnir eru ótrúlegir að vera þarna ofan í með þeim svona lengi...
ég er alveg að fara að koma mér suður og þá verður sko tekið á því í lærdómnum... það kemur sér vel að vera í bindindi því þá fer ég ekkert út heldur er bara að læra læra... Júlía spyr mig á hverjum degi hvenær við förum á Hvanneyri til Eyrúnar hennar sem hún á... mjög fyndið, Eyrún á Bjarka en hún á Eyrúnu... ;)
Ætla annars ekki allir á blót nema kúkalabbarnir Kolla og Raggi???
Það eru aðeins 11 dagar...
Annars er lítið að frétta, dagur 11 í áfengisbindindi og dagur 11 í karlmannsbindindi. Þetta er allt að massast hjá mér og þetta verður held ég bara peace of cake... Um helgina er ég að pæla kannski að fara á ball í Víðihlíð eftir þorrablótið og keyra hana Guddu mína sem er ekki í áfengisbindindi og ég giska á að hún fari ekki einsömul heim ef ég þekki hana rétt...

Tamningar ganga alveg hreint glimrandi, Máney mín er svo yndisleg og þæg og það er allt eins og blómstrið eina. Spes er í dúndurfjöri alveg að springa úr vilja... Möskva hef ég lítið riðið þar sem dottið var undan honum þegar ég fékk hann en vonandi lagast það í dag því Eiríkur ætlar að koma og járna í dag.
Ég er búin að vekja mikla lukku undanfarið hjá Hvammstangabúum. Þetta er alveg æðislegt, allir saumaklúbbar, prjónaklúbbar og hittingar yfir höfuð eru að tapa sér þessa dagana. Ég er að leika við UNGLINGA... þetta er rosalegt og annað eins hefur ekki sést í ár og aldir... Hvammstangi mun held ég bara aldrei jafna sig á þessari hegðun í mér... Ég er sko þokkalega með gráa fiðringinn... Þetta er samt fyndið þar sem að ég og Fanney Skúla erum búnar að vera góðar vinkonur í nokkur ár og ekkert sagt við því, enda er hún nottla alveg HEILU ári eldri en Sara og co. Einnig leik ég oft við Önnu Dröfn og fleiri, en það er nottla heldur ekkert mál þar sem að hún er frænka mín...
Þetta er afskaplega fyndið allt saman og ég vona að ég hafi ekki hneykslað liðið of mikið (hef reyndar heyrt að ég hafi gert það) en ég vil bara þakka Söru og co fyrir mikla og góða hjálp undanfarið, þau eru búin að hjálpa mér að gefa, moka og passa Júlíu ef ég á þarf að halda...
Ég er samt ekki alveg vond þar sem að ég bíð þeim að borða í staðinn og margt annað (nei Gunni, ekki svoleiðis)...Ég bið ykkur vel að lifa - the grey feather is over and out...
Minningargreinin...
Elsku Tryggvi minn.
Hér sit ég grátandi og hlusta á Söknuð með Vilhjálmi Vilhjálmssyni og hugsa um þig. Ég hugsa um allt sem við höfum gert saman. Í kvöld sátum við fjölskyldan saman og horfðum á gömul myndbönd. Við sáum fjöruferðina góðu og einnig ferðalagið sem við fórum á strandirnar. Þetta voru ómetanlegar stundir og ótrúlega gaman að rifja þetta upp. Þú varst ótrúlega þolinmóður við okkur stelpurnar þótt við værum allar að hnoðast á þér í einu. Alltaf þegar þú settist í stólinn þinn í stofunni í Gröf var ég ekki lengi að skríða í fangið á þér og kúra þar. Eitt myndband sáum við líka, það voru smalamennskur frá því 1991. Það var rosalega gaman að sjá þig þeysast um á Neista í brúna hnakknum þínum og með hreppstjórahúfuna góðu.
Ófáum stundum eyddum við í fjárhúsunum á haustin og ég man alltaf hvað við systur vorum rosalega ánægðar þegar þið Stella gáfuð okkur Þrennu, móflekkóttu gimbrina sem við fengum að eiga saman. Ég var líka svo rosalega montin þegar þið gáfuð mér Revíu, svarflekkóttu gimbrina sem ég var búin að horfa á allan tímann meðan við vorum að vigta.
Ég er svo rosalega þakklát fyrir að hafa geta verið með ykkur Stellu allan síðast sauðburðinn í Gröf, þótt oft á tíðum hafi hann verið frekar erfiður, sérstaklega þar sem þér fannst við Stella vera óttalega vitlausar oft og frekar stjórnsamar.
Ein minning er mér mjög ofarlega í huga og það er þegar ég sat við eldhúsborðið í Gröf og þú komst í rólegheitum eins og þú varst vanur, labbaðir að glugganum, horfðir út og sagðir, Eydís, þú veist þú átt Vakningu. Ég varð orðlaus og sagði, ha? Þá sagðir þú aftur, alveg jafn rólega, þú veist þú átt Vakningu. Ég trúði þessu ekki og sagði aftur ha? Þá sagðir þú mér að þið Stella hefðuð ákveðið að gefa mér hryssuna sem ég dýrkaði. Ég man að ég varð svo rosalega ánægð og stökk á ykkur og kyssti ykkur. Þú sagðir að hún ætti að vera hjá einhverjum sem myndi nota hana og hún ætti vonandi eftir að reynast mér vel, sem hún hefur sko gert.
Í seinni tíð var ég rosalega mikið hjá ykkur Stellu. Ég var alltaf með hesta á járnum í hesthúsinu í Gröf. Þú komst reglulega til mín í hesthúsið þegar þú varst í göngutúrum með hundana. Alltaf kíktirðu inn, gafst mér knús og kysstir mig og sagðir, þetta er ekki slæmt. Svo röltirðu um hesthúsið, klappaðir Jarp og hinum líka og þegar þú komst að Mósa sagðirðu, þennan hest hlýt ég að eiga, hann er svo fallegur. Þegar ég var á útreiðum og hitti þig einhversstaðar á leiðinni, þar sem þú sóttir alltaf póstinn, sagðirðu alltaf það sama, ertu að fara langt? Og oft eftir að ég svaraði þér fylgdi einhver skemmtileg saga frá því þegar þú varst að temja sjálfur. Ég man alltaf eftir sögunni um stóðhestinn þinn, Jarp, sem þú reiðst um fjöll og fyrnindi og líka sögunni þegar þið böðuðuð hrossin í sjónum við lúsinni. Þessar sögur og heilmargar aðrar eru búnar að rifjast upp á síðustu dögum og eru mér ómetanlegar.
Það er ótrúlegt hvað þú hafðir gott lag á dýrum, Kappi var eins og skugginn þinn og ef þú komst ekki með mér út í hesthús þá kom hann bara ekki með mér. Eins fannst mér ótrúlegt með folöldin að þú gast alltaf klappað þeim og kjassað þau löngu áður en ég komst nálægt þeim. Þú hafðir svo rosalega góða nærveru og folöldin voru svo slök þegar þú komst að tala við þau. Þeim leist ekki alveg á það þegar ég kom með minn brussuskap og fór að tala við þig og segja að ég skildi bara ekki af hverju þau sneru sér bara út í horn þegar ég talaði við þau. Þá bentir þú mér á það að kannski væri betra að vera með minni læti og bara tala rólega við þau. Nú hef ég tileinkað mér þessa ró og það gengur mun betur að spekja folöldin. Þú varst svo fullur af fróðleik um allt sem viðkom dýrum og ég hef lært mikið af þér.
Tilsvörin þín Tryggvi voru stundum alveg hreint ótrúleg. Oftar en ekki sagðir þú þegar þú fékkst þér kaffi að það væri nú betra ef smá koníak væri með. Þér þótti ekki verra ef koníakið læddist út í. Og ég man að Stella sagði mér að á afmælisdaginn þinn þann 3. desember síðastliðinn hefði hún gefið þér koníak í kaffið þitt og þér hefði nú ekki fundist það slæmt. Mér fannst líka svo gaman þegar þú sagðir við mig og horfðir á Stellu, hún er falleg þessi kona. Stella sagði mér líka frá því þegar hún sagði við þig eitt sinn hversu heppin Indriði og Herdís væru með tengdasyni. Þú varst nú ekki lengi að svara um hæl og sagðir að það væri nú ekki skrítið þar sem að Indriði væri svo mikill ræktunarmaður.
Ég er rosalega ánægð að Júlía hafi fengið að kynnast þér og hún hafi fengið svona mikinn tíma með þér. Hún er nú ekki alveg að skilja að Tryggvi hennar sé ekki lengur á sjúkrahúsinu. Það er svo gaman að hún talar alltaf um þig sem Tryggva SINN, hún á þig segir hún og Stella smá.
Ég verð líklega að kveðja þig núna, þótt ég vildi halda áfram að skrifa og skrifa, því einhvern veginn finnst mér ekki eins og þú sért farinn þegar ég er að skrifa þetta. Mér til huggunar þá veit ég að pabbi þinn og Snati hafa tekið á móti þér. Ég er líka viss um að þú hafir tekið á móti Jarpi og þið séuð einhvers staðar saman.
Elsku Tryggvi minn, ég get bara hreinlega ekki lýst því með orðum hversu sárt mér þykir að kveðja þig og ég bara get ekki trúað að ég eigi aldrei eftir að kyssa þig og aldrei eftir að faðma þig og aldrei aftur finna Tryggvalykt. Ég lofa þér að ég skal passa hana Stellu þína eins og þú baðst mig svo oft um að gera og ég veit að þú passar okkur.
Ég er búin að hugsa mikið um þessar 4 setningar í laginu Söknuður, því þær passa svo rosalega vel við líðan mína núna.
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður,
Og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður,
Verða betri en ég er.
Þín Eydís.
