Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

úje

01. apríl 2008 klukkan 23:08
jámm helgin var bara fín... Ég kom norður á fimmtudeginum og fór beint á Blönduós á Dívuæfingu... Síðan á föstudeginum var skellt sér aftur á Blönduós og þá var það sýningin á Blönduósi þetta árið... Það gekk að mestu vel, svoldið um villur hér og þar en vonandi lagast það þegar við komum í stærri höll... Það hefur farið ólýsanlega í taugarnar á mér að horfa á vídeó af mér á hestbaki því það er eins og ég sé ekki á baki heldur bara brjóstin mín þar sem að það sést ekki í mig fyrir þeim... Ég hef mikið pælt í þessu og bara ekki geta þolað það og meira að segja veigra ég mér við því að láta taka vídeó af mér á hrossunum mínum sökum þessa viðbjóðs...
Og til að kóróna þessa minnimáttarkennd mína kom Dagný frænka hans Loga til mín á sýningunni og sagði - hvenær eruði júllurnar að sýna á eftir??? ég bara ha??? já þú veist ég sé aldrei neina hesta eða show - ég sé bara risajúllur hossast... Og ég benti henni á - ekki mjög kurteislega - að ég væri sú eina með ógeðsrisabrjóst og þess vegna væri hún að tala um MIG... Svo þetta æsti mig enn meira að gera eitthvað í mínum málum...
Þannig að eftir miklar pælingar - reyndar áður en Dagný tjáði sig - komst ég að lausninni og hún var ÆÐISLEG - það var eins og skýjunum létti af himninum, sólin færi að skína og ég gat horft upp aftur!!!
Ég fór í apótekið og keypti mér 6 metra langt teygjubindi!!!!!!!!!!!!!! Og vitiði annan eins draum hef ég ekki upplifað í langan langan tíma... Þannig að stuttu fyrir atriðið okkar fórum við Gudda inn á kaffistofu í hesthúsinu sem við vorum með og ég úr að ofan - öllu nema íþróttatoppnum og reyrðum ógeðin niður - FAST... Þetta var æði gæði skal ég ykkur segja, ég gat reyndar ekki andað og ekki beygt mig, en mér er SAMA ég gat riðið um höllina eins og ein af dívunum og alveg án þess að ógeðin myndu slást í andlitið á mér (okei kannski smá ýkt)... OMGS eins og gelgjurnar myndu segja, þetta var heaven...
En að öðru, á laugardagskveldið var smalað saman í spil og mættum við þar galvösk að spila, ég, jóhanna, gudda, fanney, logi, rakel, alma, inga rut og steini... Logi var reyndar allan tímann í pool en við hin í partý og co... Þetta var hin mesta skemmtun fyrir utan örlitla truflun frá fullum gamalmennum en ekkert til að böggast... Steini og Inga Rut brilleruðu og ég held það sé langt síðan að ég hef hlegið jafn mikið, ég mæli hiklaust með þeim í spil... Þau voru æði... Svo var brunað í eftirpartý - mjööög langt síðan ég hef látið sjá mig í svoleiðis, það var bara gaman,nema að vinnukonan á Gauksmýri, ein af þessum margfrægu, var að reyna við manninn minn... En ég treysti á það að hann hafi sagt henni að hann ætti miiiiiiklu fallegri konu heima, allavega konu með miiiiiklu stærri brjóst... Glottandi
en allavega ég er búin að rugla of mikið núna, er að pæla að fara að lúlla, ég og Júlía erum nefnilega bústjórar í Gröf - ofsagaman
 
Ingunn
Djöfull ertu klekkuð...
#1
02. apríl 2008 klukkan 12:42
 
Kolla
ég held ég þurfi svona teygjubindi líka...
#2
02. apríl 2008 klukkan 13:55
 
Þorbjörg Hega
Snilldar lausn að nota teygjubindi :) farðu nú að koma á hvanneyri
#3
02. apríl 2008 klukkan 20:34
Uss ég held að þú sért sú eina sem takir eftir þessu!
En djöfull var gaman að spila, ofsa gaman! ;)
OMGS haha
#4
02. apríl 2008 klukkan 23:01
 
Tóta
hehehehe þú ert náttúrulega BARA SNILLINGUR!!!!
#5
02. apríl 2008 klukkan 23:08
 
Hjördís
Þú ert nú alveg Eydís mín....:) En var að vita það í gær að þú værir komin með nýja síðu..var búin að blóta þér í sand og ösku fyrir að blogga aldrei..aðeins heimskari ég:) Er farin að sakna þín...hvenær ætli við hittumst næst???
#6
03. apríl 2008 klukkan 12:31
 
Eydís
hehe já bloggið mitt bilaði og ég gat ekkert skrifað að ég væri búin að breyta... : ) En já það er kominn tími á að við förum að hittast aftur... það fer að koma vor, verður þú þá ekki á Bjargi??? ; )
#7
03. apríl 2008 klukkan 13:17
 
elly
Djöfull ertu sniðug góða. Og hef ég sko trú á því að þetta hafi svínvirkað. Kv. Ellý.
#8
05. apríl 2008 klukkan 13:06
 
Hjördís
jú jú eydís ætli ég verði ekki með annan fótinn á bjargi út maí:)
#9
07. apríl 2008 klukkan 08:04
 
Guðrún Ósk
Þetta var unaðsleg stund sem við áttum þarna saman:)
#10
07. apríl 2008 klukkan 11:29
Hahahaha já ég kannast við þetta, eitt sinn var ég að fara með hrossin á Ós eftir réttirnar, var í mjög lélegum brjóstarhaldara, tútturnar mínar voru orðnar eins og tvær pizzusneiðar og var farin að slá sjálfan mig utanundir með þeim svo ég kom við á Staðarbakka og bað um teip!!! Ég hreinlega gat ekki meir, einhver sem var í heimsókn hjá Gísla og Anítu fékk það hlutverk að teipa á mér brjóstin, yfir bolinn að sjálfsögðu...... ég er dama hehe...... og þvílíkur léttir :-D
#11
08. apríl 2008 klukkan 12:58
hehe nákvæmlega - mér varð einmitt hugsað til þín og þessarar sögu um daginn... ;)
#12
08. apríl 2008 klukkan 14:07

Skrifa athugasemd