"Le woman fucka"
19. maí 2008 klukkan 13:42


Jæja kannski maður skrifi smá fyrst maður er fastur inni eins og fífl... Ég fór síðastliðinn föstudag á tónleika með JET BLACK JOE - það voru held ég barasta bestu tónleikar sem ég hef farið á... allavega hef ég aldrei verið í annarri eins geðshræringu á tónleikum áður, enda fékk Brynja greyið aðeins að finna fyrir því... Ég var bara OMG og vá - hver þarf á karlmönnum að halda og svo reyndar hló hún mikið yfir því hvað ég varð fúl þegar hann tileinkaði lagið Let´s stay together til Rutar Róberts... Oj gubbi gubb - það er ógeðs- flugfreyju- konan- hans... (Reyndar miklu fallegri en ég - en ábyggilega ekki með stærri brjóst )
Ég var líka alltaf bara alveg við það að gráta og hringdi í hina og þessa þegar góð lög voru - Lilja á Hrauninu fékk smá sýnishorn, Fanney Dögg líka og Brissi meira að segja...
Það voru einhverjir efasemdarpúkar sem voru með einhvern skæting út í Gospelkórinn - en vitiði, þessi kór er náttúrulega rugl líka, þvílíkar raddir og svo í laginu You ain´t here þá sungu Edgar Smári og ein ljóshærð upp til helvítis ( ég veit öfugmæli ) og maður var bara með gæsahúð dauðans... Ég get ekki beðið eftir DVD disknum - veit ekkert hvort hann kemur en það er bara eins gott... Hei já - Sigriður Guðna söng líka og vá hvað það var flott hjá henni...
Jæja ætla að halda áfram að setja inn myndir á síðuna hennar Júlíu Jöru sem steinsefur hérna inn í herbergi... KISS KISS
P.S. Til hamingju með afmælið Fríða Björg
http://sveinap.bloggar.is
Sveinbjörg
Kjaftæði, þú ert miklu fallegri.
#1
20. maí 2008 klukkan 08:57
Sæa
Sammála síðasta ræðumanni.... miklu fallegri !
#2
20. maí 2008 klukkan 16:33
Jenný
Hey hún er flugfreyja en þú ert superofurkona eða mér finnst það, mér finnst þú æði, kveðja Jenný ekki æði eða stundum svona næstum því aldrei
#3
21. maí 2008 klukkan 10:41
