Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

HJÁLPAÐU MÉR UPP - MÉR FINNST ÉG VERA AÐ DRUKKNA

26. maí 2008 klukkan 22:53
Bob Marley
Ég sendi hér með út MAJOR hjálparbeiðni!!! Mig vantar einhvern / einhverja til að hjálpa mér að leggja lokahönd á þrif og flutninga á Hvanneyri - þeir sem eru svo yndislegir og góðir að koma með mér og hjálpa mér fá að launum ógleymanlegt roadtrip með mér og boð í afmælisveislu barnsins míns (er sko alltaf með ógeðslega góðar kökur)  sem er BY THE WAY  að verða tveggja ára á laugardaginn... Vá hvað tíminn líður hratt...
Ég verð líka að deila með ykkur nýjustu gleði minni... Hann Bjöggi minn sem er mitt uppáhald þessa dagana, gaf mér svona plakat af Bob Marley - alveg eins og þessa mynd!!! Ég suðaði oft um hana hérna fyrir nokkrum árum og nokkrir aðrir víst líka. Haldiði svo bara ekki að þessi elska hafi sagt mér að koma við heima hjá sér þar sem hann væri með gjöf handa mér - ég var alveg græn og svo þegar hann kom með plakatið, já ég get eiginlega ekki líst tilfinningum mínum... Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér þykir vænt um þetta - það getur eiginlega enginn ímyndað sér það...
Fyrir ykkur sem hugsið - hmprf plakat - hvað er svona merkilegt við það??? SCREW YOU - ALL OF YOU

En annars er lífið bara eins og það er - ciao
 
Lordinn
Hver er bob marley?
#1
27. maí 2008 klukkan 09:03
 
Eydís
Mikið vona ég að þetta sé grín en annars er Bob Marley maðurinn á myndinni... :)
#2
27. maí 2008 klukkan 09:52
 
Guðjón
Jebb. Hver kæmi ekki til með að missa það í buxurnar yfir að fá Bob Marley plakat? Ég bara spyr.?????
#3
27. maí 2008 klukkan 14:23
töff, töff....
#4
27. maí 2008 klukkan 19:26
 
Eydís
ohh þegar ég sá nafnið Guðjón þá bara YES hann ætlar að bjóðast til að hjálpa mér að flytja... en neeeeeei...
#5
27. maí 2008 klukkan 20:57
Æ elsku Eydís, það er mjög langt síðan að ég fór bloggrúnt, og þess vegna er ég bara að sjá þessa ósk þína annars hefði ég pottþétt rennt til þín og hjálpað þér...pottþétt.... ertu ekki annars búin?
#6
31. maí 2008 klukkan 00:34
 
Sirrý
Hvernin er það er ekki kominn tími á nýjar fréttir.... Vantar eitthvað að lesa hérna á eyrinni....
#7
02. júní 2008 klukkan 16:04
 
Guðrún Ósk
úúúfff ég heppin, var líka að sjá þessu beiðni núna... ég er nebbla svo aumingjagóð. hefði neyðst til að fara með þér ef ég hefði séð þetta
#8
04. júní 2008 klukkan 22:42
 
Jenný
Og svo kom Jenný með ræstikremið og við fórum og keyrðum á methraða með kaniku í kassa fyrir Anitu, þrifum á methraða-ish og keyrðum heim um hálf-fjögur-ish, story of my life ó já, takk fyrir góðar stundir, þú ert perla og ég er svín, love you, sjáumst sem fyrst svona í júli-ish
#9
10. júní 2008 klukkan 22:56
 
Sirrý
Hvernin er þetta er ekkert að ske.....
#10
11. júní 2008 klukkan 19:13
Hellúú!
Til hamingju með 2 ára skottið þitt um daginn og vonandi redduðust flutningarnir og þrifin. Hefði sko komið eins og skot hefði ég verið stödd á eyrinni;)
Kemuru ekki á plöntunámskeiðið?
#11
11. júní 2008 klukkan 22:51

Skrifa athugasemd