Mamma, ég er lreeplrigosi (sprelligosi)
17. júní 2008 klukkan 01:10



Já ég skal sko segja ykkur það... af kellunni er svosum lítið að frétta, bara á fullu í vinnu og að leika við barnið mitt og ríða út... Ég fór í alveg hreint frábæra hestaferð um helgina og með alveg frábæru fólki skal ég ykkur segja – þetta var alveg æði gæði. Ég var með 10 hesta sjálf og enginn af þeim var leiðinlegur allt alveg yndisleg hross. Ég var svo góð og leyfði Tótu að prófa Karda minn og býst ég við að hún sé komin á listann yfir þá sem vilja kaupa hann. En annars er undirbúningur morgundagsins búinn að vera efst á baugi í kvöld hjá mér. Það verður firmakeppni á morgun og svo ræktunarbússýning um kvöldið.
Annars langar mig aðeins að pústa. Ég er mjög óheppin manneskja. (hef samt gert mér þetta allt saman sjálf) Ég hlýt að hafa gert eitthvað mjög vont í gegnum tíðina þar sem að ég trúi mikið á karma.
Ég er semsagt með mjög ónýtt bak, brjósklos og mikla vöðvabólgu. En ég get svosum kennst sjálfri mér um það þar sem að ég er svo hokin alltaf til að fela mig að ég er búin að eyðileggja líkamann. (ekkert grín að vera 1.73 á hæð og breidd sko) Ég er með vefjagigt, stundum mjög slæma og má þá ekki snerta mig því þá finn ég til. Það skiptir ekki máli hvar ég er snert, sársaukinn er mjög mikill og varir lengi á eftir, verst er þó þegar fólk potar í rifbeinin eða á milli – það er killer. Verst er þó með þessa djöfulsins vefjagigt að hún sést ekki og þess vegna skilur fólk ekki af hverju ég er að drepast ef ég er snert.
Einnig er ég með Psoriasis, sem þessa stundina er eiginlega orðinn uppáhaldssjúkdómurinn minn. Þessi ógeðslega ógeðslegi sjúkdómur er, æi ég veit ekki hvernig ég á að lýsa honum, hann er eiginlega bara vangefinn. Þú getur aldrei séð fyrir hvað gerist næst með hann í fararbroddi. Núna til dæmis er ég öll að steypast í viðbjóð og kláðinn er eftir því. Hársvörðurinn er þakinn og ég er að sturlast úr kláða. Verst af öllu finnst mér eiginlega draslið inni í eyrunum, það er pirringur sem getur gert mig brjálaða. Í kvöld reif ég af eyranu, skinn klump og tók þá óvart ysta húðlagið með þannig að það er geðveikt mjúkt undir – það var reyndar gott því þá fór kláðinn og sviði kom í staðinn sem er ágætistilbreyting frá afskaplega leiðigjarnri rútínu. Þetta get ég líka kennt mér um þar sem ég er stresshaus dauðans. Ég var samt að byrja í geislaljósum í síðustu viku og held ég í vonina að töfralausnin mín sé komin.
Ég er með áreynsluastma, sem er áunninn þar sem að ég var með berkjubólgu ( A – týpíska lungnabólgu ) frá maí til ágúst eitt sumarið án þess að láta athuga mig. Ég veit ekki af hverju ég lét ekki athuga mig þar sem að ég gat ekki labbað nema 10 skref án þess að fá hóstakast og æla. Þetta er svona það helsta sem er að mér þessa dagana, fyrir utan tvennt sem er ekki birtingarhæft. Ég varð bara aðeins að vorkenna sjálfri mér þar sem ég er hársbreidd frá því að bugast. Algjörlega.
Ég veit líka alveg að ég á ekki að vera að kvarta. Það eu margir aðrir sem eru miklu verr staddir, en þeir eiga ekki þetta blogg heldur ég og ég má þess vegna alveg pústa...
En jæja gengur ekki, upp með grímu og höfum gleði á morgun...
Myndir dagsins eru af Salvör gullfallegu merinni minni og litlu nýfæddu Grettisdóttur minni
Elsku kerlingin .... en aftur á móti ert þú skemmtileg og það eru nú ekki allir sem geta státað sig af því :)
#2
18. júní 2008 klukkan 00:14
Tóta
æji greyið mitt... tek alveg undir þetta hjá Guðbjörgu.... en vá hvað þetta er satt hjá þér með hestinn úff.... annan eins hest hef ég aldrei prufað... og ég fékk nú alveg að prufa þá nokkuð marga úti hjá Huldu og Hinna... en vá hann er geggjaður TAKK ÆÐISLEGA FYRIR AÐ LÁNA MÉR HANN þetta ver geðveikt
#3
19. júní 2008 klukkan 22:20
Það er gott að lesa bloggið þitt. Það kostar að sjálfsögðu kjark að viðurkenna að maður sé að bugast og þá veit maður líka að maður hefur kjark til að halda áfram:)
Það er ekki það sama og að kvarta..enda kvarta smarta..það hafa allir sinn djöful að draga og í nöff is í nöff..sbr. fataskápapistil á mínu bloggi..ho ho
Það er ekki það sama og að kvarta..enda kvarta smarta..það hafa allir sinn djöful að draga og í nöff is í nöff..sbr. fataskápapistil á mínu bloggi..ho ho
#4
21. júní 2008 klukkan 20:39
Sæa
Elsku Eydís
Nú er komin tími á að slaka aðeins á og vera svolítið "sjálfselsk" og hætta að segja já við alla! Þú verður að hugsa aðeins um heilsuna þína, ég veit .... hart komið frá mér en ég þekki þetta aðeins, ég tala af reynslu
Nú er komin tími á að slaka aðeins á og vera svolítið "sjálfselsk" og hætta að segja já við alla! Þú verður að hugsa aðeins um heilsuna þína, ég veit .... hart komið frá mér en ég þekki þetta aðeins, ég tala af reynslu
#5
26. júní 2008 klukkan 18:20
Eydís Ósk
já hehe einmitt, þú ættir að þekkja það ;)
#6
27. júní 2008 klukkan 12:48

En mér leikur hugur á að vita hvaða tvennt þetta er sem má ekki segja...... Kannski veit ég annað, eða hvað???