Versló
06. ágúst 2008 klukkan 17:25
Versló var bara helvettttans fín - ég og guddan skunduðum með erfingjana okkar í bústað til M og Ingunnar og erfingjanna þeirra. Það var alveg rosalega gaman og mikið hlegið. Á sunnudeginum var svo farið á ball á Steinsstöðum með Geira Vall og var það hin mesta skemmtun - mér fannst samt eiginlega leiðin fram og til baka skemmtilegust og myndbandið sem við eigum eftir það er eitt það fyndnasta sem ég hef séð.
Annnars er svosum ekkert nýtt að frétta, skólinn að fara að byrja og ég er EINUNGIS í 4 fögum fyrri önnina og svo fékk ég að vita í dag að prófin eru bara í eina viku núna svo það verður sko nóg að gera. En ég er bara orðin spennt að komast frá Hvammstanga þar sem maður heyrir sögur um sinn fyrrverandi alla daga, um allar nýju konurnar og bara loka sig af á Hvanneyrinni sinni með öllum snillunum þar. EKki það að ég á eftir að sakna MARGRA hér og ekki veit ég hvað við Júlía eigum eftir að gera án Tóta kokks og Guddunnar okkar.
En annars get ég ekki beðið eftir haustinu - smala, myrkur, vigta, sónarmæla og fleira í þeim dúr...
Hvernig var versló hjá ykkur? mig langar mikið að heyra dirty details...

Eydís Ósk
Ég vil taka fram að þetta er ekki skot á Hvammstangabúa eða neitt tengt því... ( Dóri var að skamma mig) heldur verður gott að komast burt og hreinsa hugann
#1
07. ágúst 2008 klukkan 14:59
Hjördís
djöfull er ég sammála þér eydís mín:) En haustið verður geggjað
#2
07. ágúst 2008 klukkan 23:54
Eydís Ósk
ójá ég get ekki beðið
#3
08. ágúst 2008 klukkan 08:36
Kolla
Dirty details... ég sofnaði eftir eitt bæði kvöldin, drakk 2 bjóra alla helgina, tjaldaði á Hamri (eina tjaldið), sat við varðeld, smakkaði í fyrsta skipti sykurpúða (jebb.... rosalegt)!!!
#4
09. ágúst 2008 klukkan 21:41
Lilja
Hummm - á ekki nein dörtý en get verið HJARTANLEGA
#5
11. ágúst 2008 klukkan 11:45
Lilja
-ÚPPS-
#6
11. ágúst 2008 klukkan 11:45
Lilja
Hvað er að þessu krapparóní - en það sem ég vildi sagt hafa er -ohhhhh síminn- er að ég gæti ekki verið meira sammála um Hvanneyrar spenningin...víííí
#7
11. ágúst 2008 klukkan 11:47
Eydís Ósk
já vei þú kveiktir alveg í mér þegar við töluðum saman í vikunni... :)
#8
11. ágúst 2008 klukkan 12:03
Guðrún Ósk
Þú átt auðvitað bara ekki eftir að meika þetta án mín.... Ekki ertu að fara vigta og sónarskoða þig? hahahahah svo feeeendin!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
#9
11. ágúst 2008 klukkan 23:57
Eydís Ósk
hmm Guðjón minn - ertu að búrúmmtsjúa dirty details???
#11
13. ágúst 2008 klukkan 09:00
Guðjón
Naj, bara brandarann hennar Guðrúnar.
#12
13. ágúst 2008 klukkan 18:03
Eydís Ósk
hehe já - var ekki búin að sjá og fatta hana ;)
#13
13. ágúst 2008 klukkan 19:09