"Le woman fucka"
er á næsta leiti. Ví hvað það verður gaman. Hjá mér er búið að vera fjör undanfarið, var í staffapartýi á þriðjudaginn og er ennþá að jafna mig. (og ábyggilega einhverjir fleiri)
Annars erég bara á fullu með hinum gellunum í kvennareiðarnefnd að gera allt klárt, og líka að gera hestana fyrir konurnar mínar ready og svo þarf að flytja þá á morgun og svona - þetta verður svaka gaman vona ég.
Svo er bara próf próf í næstu viku. vonandi gengur mér betur núna (ef ég myndi fara að drullast til að læra) og svo er ég að fara að flytja - ég er mjög spennt en þó örugglega ekki eins spennt og Einararnir mínir sem eru báðir að fara á límingunum við tilhugsunina að skólinn er að byrja.
Ég fann bréf áðan sem ég hafði fengið - ohh hvað ég verð stundum pirruð - ég bara á ekki að fá pening með einhverjum öðrum hætti en að þræla fyrir hann - Húnasjóður - neibb ekki fékk ég úr honum, neibb aldeilis ekki enda er ég nú bara einstæð móðir að fara að leigja rándýra íbúð og er að taka tvær B.S. gráður en - JÁ ALVEG RÉTT, ÞAÐ ER ÁBYGGILEGA AF ÞVÍ AÐ ÉG FÆ VAXTABÆTUR!!! hmrpf - það er nú eitt dæmi um peninga sem ég fæ ekki - húsaleigubætur - ég fæ þær ekki af því að ég fæ vaxtabætur, vaxtabæturnar eru bæ þe vei 23.000 á ári!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! jebbs dugar mér mjööög vel og einmitt til að minnka leiguna á mánuði.
Vitiði, þetta pirrar mig næstum því jafn mikið og frosthringirnir í brauðum dagsins í kaupfélaginu - það er algjör dýrðardásemd þegar maður fer í kaupfélagið, glorhungraður og kaupir sér brauð eða rúnstykki, klöngrast upp stigann aftur og sest, sker í sundur og viti menn FROSTHRINGUR, þurrt og hart brauð - alveg dásamlegt. Ég þramma kolvitlaus niður aftur og húðskammast og greyi liðið bara, en hérna sko þetta er samt brauð síðan í dag. Dásamlegt - ég er einmitt að kaupa það að brauð sem er þurrt og með frosthring sé bara nýkomið úr ofninum. og hana nú!!! (sagði hænan þegar hún lagðist á bakið)
Við reynum bara aftur að ári :)
Eydís, Sveinbjörg, Hjördís, við erum greinilega ekki búinar að gefa af okkur nógu mikið til Húnaþings til að fá styrk Þ.e.a.s skattpeningar og þess háttar
en já það er satt að það er miðað við fólk sem er að klára...

