Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

jæja...

10. september 2008 klukkan 23:15
nú er keppnin komin niður í þessi þrjú nöfn

Stormskör

Sunna

Salka (gott nafn Rakel ;) )

Endilega kjósið um þessi þrjú nöfn...
 
Ellan
...ég segi Stormskör og ekki orðumþaðmeir :)
#1
11. september 2008 klukkan 09:03
Mitt nafn datt út þannig að ég segi ekkert um þetta mál lengur !!!!!
#2
11. september 2008 klukkan 09:56
 
Sæa
pfjuff mitt datt líka út pfjuff......

Mér líst vel á þessi nöfn, sérstaklega Stormskör eða Salka
#3
11. september 2008 klukkan 16:52
 
Unnur Helga
ég er sammála Rakel um Sölku.
#4
11. september 2008 klukkan 17:38
 
Sirrý
Salka
#5
11. september 2008 klukkan 20:24
 
Hafdís
ég segi salka
#6
11. september 2008 klukkan 20:54
 
Kolla
Stormskör held ég bara. Er bara búið að festast við hana...
#7
12. september 2008 klukkan 11:17
 
Guðrún Ósk
Mér finnst Stormskör ekki svo töff... ég segi Salka
#8
14. september 2008 klukkan 23:04
Mér líst best á Stormskör.
#9
15. september 2008 klukkan 10:34
 
Hjördís
mér finnst nú sævör en þar sem það er dottið út segi ég salka:) var bara nánast hætt að kíkja á bloggið þitt þar sem það kom ekki neitt:)
#10
15. september 2008 klukkan 23:10
 
Eyrún
Mér finnst Sunna mjög viðeigandi... við áttum einmitt svona breiðblesótta meri í denn sem hét Sunna.... en þar sem mér sýnist það ekki njóta viðeigandi vinsælda þá kýs ég með Sölku nafninu... geymdu Stormsker til betri tíma!
#11
16. september 2008 klukkan 02:36
Jebb, ég held að Salka sé bara málið...ég kýs það.
Takk fyrir gærkvöldið;)
#12
16. september 2008 klukkan 09:45
Eydís ekkert kjaftæði þú skýrir hana Stormskör það er alvöru nafn. Salka og Sunna er eitthvað svo píkulegt maður.
Stormskör er svo rosalega Íslenskt og flott. Ég skýrði fola sem ég fékk í vor Falhófnir, það þýðir fallegir hófar og er úr goðafræðinni.
Alla vega að þá hlakkar mér voðalega mikið til að hitta þig á sunnudaginn þegar að ég kem á Hvanneyri :)
#13
16. september 2008 klukkan 10:36
Stormskör Stormskör Stormskör Stormskör Stormskör!!! Þetta hlýtur að gera útslagið!!!!!!!!!!
#14
16. september 2008 klukkan 20:27
 
Eydís Ósk
úff það endar með því að ég skíri hana Sölku Stormskör... ;)
#15
16. september 2008 klukkan 21:07
 
Hjördís
já gerðu það bara S.S. fremstir fyrir bragðið:)
#16
17. september 2008 klukkan 23:07
Ójeeee... þetta hljóta að vera einhver örlög Eydís... hvað er númerið á bílnum mínum sem verður senn (einhverntíman) þinn bíll???? JÚJÚ....... SS, en ekki hvað!!!
#17
18. september 2008 klukkan 00:27
 
Eydís Ósk
hehe já góður punktur... ;)
#18
18. september 2008 klukkan 11:33
Þar sem ég stödd í minni einka orðaleikjaviku þá finnst mér að kveekendi undan Urtu og Gretti VERÐI að heita Grettur.
Svo er ég líka dóttir hesta Helgu, svo ég áskil mér þann rétt, að koma með seint atkvæði.
#19
19. september 2008 klukkan 20:49
 
Kolla
eins og minn bíll SS :-)
#20
20. september 2008 klukkan 00:30
Mér finnst Salka flott nafn, Stormskör er meira svona töff nafn! Humm... lítil hjálp í mér - Stormskör passar nokkuð vel við hana samt út af breiðu blesunni ;) Og Salka út af sætlegheitum
#21
20. september 2008 klukkan 12:44
Haha, aukaatriði - algjört aukaatriði...
#22
21. september 2008 klukkan 11:26
 
Eydís Ósk
Hehe... já Aldís - ég vildi bara svona koma með þennan punkt - sérstaklega því þú ert dóttir Hesta - Helgu ;)
#23
21. september 2008 klukkan 15:37

Skrifa athugasemd