I´m so happy.............
21. september 2008 klukkan 22:35


Haldiði að ég sé ekki bara að fara að fá folald undan þessum tveimur - vííííí - ég er bara búin að safna í ár... þannig að næsta sumar verður magnþrungin spenna :)
ritarinn
þetta er afar áhugaverð málsgrein, svona beint undir mynd af manni og hesti. hvor á að ganga meðða?
#1
22. september 2008 klukkan 13:07
Eydís Ósk
hehe... ég pældi ekki í því... skoooo merin á efri mynd og hesturinn á neðri mynd... en þar sem þú ert sonur Hesta - Helgu þá ættir þú að sjá það... ;)
#2
22. september 2008 klukkan 14:41
Eydís.... ég var að lesa næst síðustu færsluna á GAMLA blogginu þínu. Færslu sem ég man ekki eftir að hafa lesið. OMG, Guiding Light!!!!!!!!!!!!!!! Ég man þegar Hrefna mátti ekki missa af þessum þáttum, einmitt í 9. bekk, eða heyrðu, var það kannski líka í 8. bekk OG 10. bekk... allavega þá var þetta alveg ótrúlegt. Ég var svo hneyksluð á þessu, hvernig í andskotanum fólk nennti að horfa á svona kjaftæði, fólk alltaf að DEYJA og koma svo bara aftur eftir mörg ár..... ekkert smá asnalegt. Yfir þessu hneykslast ég ENN þann dag í dag þegar Sigrún Dögg má ekki missa af þessu. Þessu hneykslast ég einnig yfir rétt áður en ég sest niður til að horfa á Neighbours.......hehe, og ef ég fer að hugsa málið, þá hefur fólk líka dáið þar og komið aftur, misst minnið, týnst, lent í slysi.... EN ALLTAF KEMUR ÞAÐ AFTUR!!!! Þetta er allt sama kjötsúpan!!!!
#3
23. september 2008 klukkan 10:18
Til hamingju með folaldsvonina
#4
23. september 2008 klukkan 13:17
Það verður spennandi að sjá hver útkoman verður;) en þetta er mjög flott mynd af þér og þórönnu;) mjög myndarlegar;)
#5
23. september 2008 klukkan 16:49
Hjördís
Til hamingju:)
#6
23. september 2008 klukkan 22:48
