Mjög fyndið...
01.09.2005 16:34:55 / eydis
jæja - börn???
já það er nú það... ég er bara ekkert svo viss um að ég ætli að eignast börn... Það er nú búið að klingja þarna niðri í einhvern tíma, sérstaklega þegar ég sé allar þessar óléttu konur útum allt... ![]()
En svo er ég nú búin að vera að heimsækja þessar vinkonur mínar sem eru búnar að vera að drita þessu útum allt og ég verð bara hálfhrædd... Ekki misskilja mig, þau eru alveg ofboðslega sæt og manni langar alveg til að borða þau, en þau eru bara svo lítil og lin, maður getur eiginlega bara ekki haldið á þeim, þau leka bara á milli handanna á manni!!!
Svo kannski spilar það líka inn í að ég verð alltaf hálfhrædd við þau og þá verða þau hrædd við mig og þá fara þau að grenja og svo endar bara með því að ég fer að grenja líka... Ég meina hvaða manni langar að eignast barn með konu sem fer að grenja í hvert skipti sem barnið fer að grenja, og það úr hræðslu við það???
Ég veit hvað margir hugsa núna, en hún vinnur á leikskóla??? en málið er að þar eru börnin farin að labba og maður þarf bara að halda á þeim til að knúsa þau... Kannski ég eignist bara barn, setji það í fóstur í ár og taki það svo aftur???
Hmmm þetta er hugleiðing dagsins... ![]()
Mjög fyndið... tíhíhí - mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þarna - ég komst ekki að því fyrr en mánuði seinna að ég væri ólétt...
