Hvíl í friði...


Elsku Tryggvi minn... Ég ætla að setja hér inn upprunalegu minningargreinina mína eftir föstudaginn. Ég komst nefnilega að því að það er limit á slögum, 3000 slög. Ég komst að því eftir að ég var búin að skrifa 5.648 slög og ég skal segja ykkur það að það var ekkert grín að taka eitthvað útúr henni.
Undanfarnir dagar hafa verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi mínu en maður sigrast á því eins og öðru. Ég er bara þakklát að hafa getað verið svona mikið með Tryggva mínum og að ég gat verið hjá honum síðustu stundirnar líka. Mér finnst bara ótrúlegt að ég hafi getað farið í upptökuprófið sem var á föstudaginn, sólarhring eftir að Tryggvi dó. Ég held meira að segja, allavega þar til annað kemur í ljós, að ég hafi náð prófinu.
En frá jólum og áramótum er það helst að segja að ég hélt kokteilboðið mitt góða. Ég held að mæting hafi örugglega verið um 60 stelpur, á eftir að telja það saman. Þetta var rosafjör og spurningakeppnin féll í góðan farveg. Spurningarnar þóttu frekar öðruvísi en það er bara gaman. Ég á alltaf eftir að setja inn myndir á Facebook en ég held að ég hafi tekið um 200 myndir.
Áramótin voru fín, ég fór að vinna um eitt og var að vinna til rúmlega þrjú og þá fór ég á ball. Svo skellti ég mér á sjó, eða til Ben, og var þar í partýi til að verða 6 eða eitthvað og þá fórum við heim, ég, Gudda, Siggi Hólm, Jón Ívar og Sunna. Stuttu eftir það lögðumst við til hvílu og ég fór svo um 9 að gefa á Hrísum með minni ástkæru Helgu Rakel og Snæbirni (já já hann er ástkær líka).
Síðustu helgi fórum við á Lindarberg, ég, Kolla, Gudda og Jóhanna. Við tókum okkur til og fórum að þrífa herbergin. Svo höfðum við líka glens og grín og afrakstur þess kemur inn á facebook rétt bráðum líka.
Ég náði öllum prófum um jólin, þótt ég væri einstæð kelling í fullum skóla og vinnu. Ég er mjög stolt af mér og vona að næsta önn gangi jafn vel. Ég er komin með 3 hross á járn, þau Máney, Möskva og Spes. Ég er farin að ríða Máney eins og herforingi útum allt og er hún bara frábær, rúm, viljug og skemmtileg. Spesin mín er alltaf söm við sig, alveg dásamleg. Möskva hef ég bara riðið á milli húsanna því það vantar eina skeifu á hann. EN þetta kemur allt saman.
Jæja, nú er ég búin að skrifa svona smá útdrátt úr undanförnum vikum, ég skrifa meira síðar. 
Hundfúlt að missa af stelpugeyminu...er ekki rétt að taka annað svona um páska...
hafa þetta árlegt um páska og jól =)
Svo er það nú bara oft þannig að manni gengur oft best undir pressu...til lukku með gott gengi í skólanum ..
Þú ert hörkudugleg og hefur alltaf verið ;)
