Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Það eru aðeins 11 dagar...

28. janúar 2009 klukkan 11:20
Þar til ég fer á Hvanneyri - víííííí......... ég er farin að hlakka ansi mikið til að komast á Eyrina mína og hitta allt fólkið mitt... Júlía spyr á hverjum degi hvar Eyrún hennar sé og vill bara fara á Hvanneyri þar sem hún á HEIMA... Í dag eru kosningarnar í skólanum og Lilja mín fær sko mitt atkvæði sem aðalkjelling skólans... Kiss 

Annars er lítið að frétta, dagur 11 í áfengisbindindi og dagur 11 í karlmannsbindindi. Þetta er allt að massast hjá mér og þetta verður held ég bara peace of cake... Um helgina er ég að pæla kannski að fara á ball í Víðihlíð eftir þorrablótið og keyra hana Guddu mína sem er ekki í áfengisbindindi og ég giska á að hún fari ekki einsömul heim ef ég þekki hana rétt... Tongue out

Tamningar ganga alveg hreint glimrandi, Máney mín er svo yndisleg og þæg og það er allt eins og blómstrið eina. Spes er í dúndurfjöri alveg að springa úr vilja... Möskva hef ég lítið riðið þar sem dottið var undan honum þegar ég fékk hann en vonandi lagast það í dag því Eiríkur ætlar að koma og járna í dag.

Ég er búin að vekja mikla lukku undanfarið hjá Hvammstangabúum. Þetta er alveg æðislegt, allir saumaklúbbar, prjónaklúbbar og hittingar yfir höfuð eru að tapa sér þessa dagana. Ég er að leika við UNGLINGA... þetta er rosalegt og annað eins hefur ekki sést í ár og aldir... Hvammstangi mun held ég bara aldrei jafna sig á þessari hegðun í mér... Ég er sko þokkalega með gráa fiðringinn... Þetta er samt fyndið þar sem að ég og Fanney Skúla erum búnar að vera góðar vinkonur í nokkur ár og ekkert sagt við því, enda er hún nottla alveg HEILU ári eldri en Sara og co. Einnig leik ég oft við Önnu Dröfn og fleiri, en það er nottla heldur ekkert mál þar sem að hún er frænka mín...

Þetta er afskaplega fyndið allt saman og ég vona að ég hafi ekki hneykslað liðið of mikið (hef reyndar heyrt að ég hafi gert það) en ég vil bara þakka Söru og co fyrir mikla og góða hjálp undanfarið, þau eru búin að hjálpa mér að gefa, moka og passa Júlíu ef ég á þarf að halda...Kiss Ég er samt ekki alveg vond þar sem að ég bíð þeim að borða í staðinn og margt annað (nei Gunni, ekki svoleiðis)...

Ég bið ykkur vel að lifa - the grey feather is over and out...
jahh, ekki veit hvort það veldur vonbrigðum hjá þér en í mínum saumaklúbb ertu ekki til umræðu...

Mér er líka alveg sama við hvern þú leikur... svo lengi sem að ég sé ekki orðin of gömul til að vera með ;))
#1
28. janúar 2009 klukkan 12:44
 
Eydís...
Hehe það er nú óskaplega gott að vita... Þú ert sko meira en lítið velkomin að leika... þú ert nefnilega svo mikið yndi Ingunn mín... :)
#2
28. janúar 2009 klukkan 13:29
 
Stella
kommon Eydís! þúst omg, að þér skuli láta þér detta í hug að tala við Söru og có!

haha! Allir sem þekkja Söru vita að hún er best í heiminum og svona til að þú sért ekki að gera þér neinar gyllivonir þá á ég hana þó að ég láni hana svona endrum og eins af illri nauðsyn ;)

Hlakka til að sjá þig hreeeessa í frumulíffræð, það er bara fjör!
#3
28. janúar 2009 klukkan 17:40
 
Eydís...
Sko Stella... Þetta gengur ekki, okei þetta gengur þá, ég er sko bara að passa Söru meðan þú ert fyrir sunnan... :)
#4
28. janúar 2009 klukkan 19:22
 
Kolla
má ég leika með þér á laugardagskvöldinu, væri alveg til í að rúnta, ef ég er ekki orðin of gömul þeas. Sleppur kannski ennþá???? ekki alveg orðin þrítug...
#5
28. janúar 2009 klukkan 23:47
 
Eydís
Hehe Kolla ef það væri eftir 18.mars þá mættirðu ekki koma með en annars ertu velkomin... :)
#6
29. janúar 2009 klukkan 00:05
 
Kolla
yes en þú manst ég er snobbuð
#7
29. janúar 2009 klukkan 12:03
 
Eydís...
Já ég veit - en kannski getur þetta sloppið eitt kvöld...
#8
29. janúar 2009 klukkan 13:22
 
Fanney
Ég hugsa að ég hafi mig bara hæga á næstunni, spurning um að sleppa bara þorrablóti !!!! humm...
#9
01. febrúar 2009 klukkan 20:49

Skrifa athugasemd