Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Bloggerí blogg

19. febrúar 2009 klukkan 14:48
Jáhh ég er alveg að deyja úr leti eins og fyrrum sambýliskona mín. Héðan er allt fínt að frétta nema mér gengur ekki vel að komast inn í lærdómsgírinn. Stundataflan fyrir næstu önn er samt spennandi þar sem að fyrsta uppkast segir mér að ég sé bara í skólanum á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum... Það er mjög sweet...

Núna eru börnin mín, Sara og Júlía farnar norður en ég fer ekki fyrr en á morgun. Ég hlakka geggjað til að fara norður á kagganum mínum sem ég var að kaupa og Elín mín ætlar að koma með mér og það verður sko fjör og ég gruna okkur um að taka eins og eitt til tvö lög á leiðinni.

Ritgerð í frumulíffræði er það sem bíður mín næstu klukkutímana, ég er að skrifa um stjórn á litnisbyggingu. Það er alveg ótrúlegt fjör skal ég ykkur segja.

Hei ein gleðifrétt - hmm allavega fyrir mig... ég komst í buksur sem ég keypti fyrir tveimur árum en hef aldrei passað í og þær voru barasta frekar víðar á mér, sérstaklega á rassi og lærum... þetta er mjög mikil hamingja hjá mér og styrkir mig enn meir í hættaðdrekkaátakinu... Það eru komnir 33 dagar í dag síðan ég hætti að drekka og er ég mjög stolt af sjálfri mér.

á morgun ætla ég að skella mér á borraþlót, eins og Sara kallar það, í Ásbyrgi. Það verður ábyggilega mikið stuð sko... En annars ætla ég að halda áfram að læra og bið kærlega að heilsa ykkur öllum...
 
Hilla
Dugleg! :)
#1
19. febrúar 2009 klukkan 18:03
 
Ellý
Æðislegt til hamingju með það. Takk fyrir samveruna á blótinu mín kæra.
#2
22. febrúar 2009 klukkan 00:27
 
Fanney
Uno mas, Eydís er súperskvísa!!!!!!
#3
22. febrúar 2009 klukkan 12:56
 
Eydís
Takk Hilla mín... :) Ellý, takk sömuleiðis þetta var rossafjör... :)
hehe fanney - uno mas... góð mynd ;)
#4
23. febrúar 2009 klukkan 00:20

Skrifa athugasemd