Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Komin heim...:)

25. maí 2009 klukkan 18:51

Jæja ég ákvað að skrifa nokkrar línur svona til að fólk gefist ekki alveg upp á þessu bloggi mínu... jámms ég er semsagt eins og alþjóð veit búin að vera veik síðustu 7 vikurnar... Ég fékk þessar dýrindis heilabólgur og var bara nær dauða en lífi... En ég náði mér á strik og eftir tvær vikur á Grensás í endurhæfingu var ég talin vera nógu hress til að komast heim.
Það var engin smá hamingja að komast heim maður... hitta dóttur mína og geta bara verið með henni... En að komast uppúr þessum veikindum er ekkert auðvelt og mun greinilega taka mjög langan tíma... fyrst eftir að ég kom heim var ég að deyja úr ógleði og viðbjóði en svo fékk ég magabólgutöflur og það er farið að mestu... er svoldið óglatt á morgnana (neibb ekki ólétt - ekki nema eftir Guð þá).

En þegar því var lokið kom sviminn... hann er ennþá þessi elska og vill ekki fara... Það er næstum jafn pirrandi og ógleðin nema ég get kannski gert aðeins meira... Þegar mig fer að svima fæ ég höfuðverk og þegar ég fæ höfuðverk fer mér að verða óglatt... jei... svona er einmitt dagurinn búinn að vera í dag, helvítis hausverkur og ógleði... ekki gaman.

Það sem ég hef lært líka í þessum veikindum að jákvæðni er allt!!! Maður er svo fljótur að sökkva sér niður í sjálfsvorkun og neikvæðni að það er ótrúlegt... ég verð lengi að laga mig andlega eftir þetta, ég er líka svo hrædd um að verða aftur veik, þ.e. gera eitthvað vitlaust svo ég veikist aftur. ég verð lengi að koma mér í að vera róleg og sjá að ég verð ekki veik aftur. En ég er i því þessa dagana að reyna að styrkja mig, bæði andlega og líkamlega. Ég fer á hverjum degi til Mikka á göngubretti og í tækin og finn strax mun á mér, aðeins eftir eina viku...

Ég bið að heilsa í bili, en já ég er allavega komin heim og ekki lengur eins veik og eg var, þetta kemur allt ;)

Hæ Eydís! Gaman að heyra hljóðið í þér! :D
#1
25. maí 2009 klukkan 22:40
Sonja Líndal ÞórisdóttirÞetta tekur allt sinn tíma.
Reyndu að rækta jákvæðnina, hún er mikilvæg.
Gangi þér rosa vel.
#2
25. maí 2009 klukkan 23:55
 
jóhanna Helga
Jákvæðni er rosa stór þáttur í veikindum og líka að tala um hlutina en ekki byrgja þá inní sér !
Þú stendur þig rosa vel Eydís mín ;)
#3
26. maí 2009 klukkan 00:25
Sæl Eydís,gott að heyra að þú ert búin að taka þolinmæðina í þína þjónustu,hún ásamnt bjartsýni er nauðsinleg til að ná bata eftir erfið veikindi.Takk fyrir spjallið á Grensás,alltaf gaman að tala um hesta,bestu kveðjur norður.
#4
26. maí 2009 klukkan 09:12
 
Eydís
Já mér er sagt að þolinmæðin skipti einhverju máli ;) Ég var að skoða síðuna ykkar og komst að því að þið eigið kindur... Við hefðum nú aldeilis getað rætt um rollur líka sko þar sem að ég er mikil rollukelling... :) við eigum rúmlega 100 núna en pabbi er semsagt að fara að stækka svo hann geti fjölgað í rúmlega 300 :)

Rosalega gaman að heyra frá þér og vonandi gengur vel hjá þér þarna á Grensás svo þú farir að komast á bak aftur :)
#5
26. maí 2009 klukkan 12:04
 
Hjördís
Eydís ég verð bara að segja hvað ég er ótrúlega stolt af þér og þú stendur þig eins og hetja! Haltu bara áfram á beinu brautinni og hugsaðu jákvætt:)
#6
29. maí 2009 klukkan 23:25
 
Eydís
Já ég held að það sé það sem skiptir mestu máli þessa dagana... jákvæðni jákvæðni jákvæðni...
#7
30. maí 2009 klukkan 00:24
 
Sæa
Gott að fá þig heim og flott hjá þér að halda jákvæðu hugarfari, mundu að slaka á og taka því rólega.
#8
30. maí 2009 klukkan 12:35
 
Lillý
Þolinmæðin þrautir vinnur allar er mér sagt veit ekki hvort satt er en líklegt þó,vertu þolinmóð og hver dagur hefur sínar þrautir,þú getur þetta.
Rosa gott að sjá að þú er komin heim, það er tær snilld :)
#9
31. maí 2009 klukkan 02:56

Skrifa athugasemd