Úti er alltaf að snjóa...
Já já, ég held ég hætti bara að blogga þar sem að allt sem ég geri þessa dagana er ekki internethæft... tíhí... myndir fara alveg að bresta inn á fésið, vonandi allavega... ég er ekki alveg að koma mér í lærdómsgírinn ennþá, gengur hálfhægt hjá mér... var að kaupa frumulíffræðibókina, hún er ekki nema 1268 bls... ég veit, það er bara tómt rugl sko...
æi ég veit ekkert hvað ég á að bulla, hmm kannski er það útaf því að ég bulla aldrei...

Adios => Eydís hin brjálaða eins og Brynja mín kallar mig...
Hvíl í friði...


Elsku Tryggvi minn... Ég ætla að setja hér inn upprunalegu minningargreinina mína eftir föstudaginn. Ég komst nefnilega að því að það er limit á slögum, 3000 slög. Ég komst að því eftir að ég var búin að skrifa 5.648 slög og ég skal segja ykkur það að það var ekkert grín að taka eitthvað útúr henni.
Undanfarnir dagar hafa verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi mínu en maður sigrast á því eins og öðru. Ég er bara þakklát að hafa getað verið svona mikið með Tryggva mínum og að ég gat verið hjá honum síðustu stundirnar líka. Mér finnst bara ótrúlegt að ég hafi getað farið í upptökuprófið sem var á föstudaginn, sólarhring eftir að Tryggvi dó. Ég held meira að segja, allavega þar til annað kemur í ljós, að ég hafi náð prófinu.
En frá jólum og áramótum er það helst að segja að ég hélt kokteilboðið mitt góða. Ég held að mæting hafi örugglega verið um 60 stelpur, á eftir að telja það saman. Þetta var rosafjör og spurningakeppnin féll í góðan farveg. Spurningarnar þóttu frekar öðruvísi en það er bara gaman. Ég á alltaf eftir að setja inn myndir á Facebook en ég held að ég hafi tekið um 200 myndir.
Áramótin voru fín, ég fór að vinna um eitt og var að vinna til rúmlega þrjú og þá fór ég á ball. Svo skellti ég mér á sjó, eða til Ben, og var þar í partýi til að verða 6 eða eitthvað og þá fórum við heim, ég, Gudda, Siggi Hólm, Jón Ívar og Sunna. Stuttu eftir það lögðumst við til hvílu og ég fór svo um 9 að gefa á Hrísum með minni ástkæru Helgu Rakel og Snæbirni (já já hann er ástkær líka).
Síðustu helgi fórum við á Lindarberg, ég, Kolla, Gudda og Jóhanna. Við tókum okkur til og fórum að þrífa herbergin. Svo höfðum við líka glens og grín og afrakstur þess kemur inn á facebook rétt bráðum líka.
Ég náði öllum prófum um jólin, þótt ég væri einstæð kelling í fullum skóla og vinnu. Ég er mjög stolt af mér og vona að næsta önn gangi jafn vel. Ég er komin með 3 hross á járn, þau Máney, Möskva og Spes. Ég er farin að ríða Máney eins og herforingi útum allt og er hún bara frábær, rúm, viljug og skemmtileg. Spesin mín er alltaf söm við sig, alveg dásamleg. Möskva hef ég bara riðið á milli húsanna því það vantar eina skeifu á hann. EN þetta kemur allt saman.
Jæja, nú er ég búin að skrifa svona smá útdrátt úr undanförnum vikum, ég skrifa meira síðar. 
Gleðileg jól
Vitið þið það að ég er alltaf að hugsa um setninguna hans Jóns Gnarrs þessa stundina, setninguna sem hann sagði eftir að hann var búinn að vera að hneykslast á því hvað Íslendingar séu lélegir á skíðum... þá komst hann svona vel að orði => ég meina, það er snjór á Íslandi allan ársins hring, nema svona rétt yfir jólin... Mér varð nefnilega hugsað til hans þegar rokið og rigningin byrjaði í gær og snjórinn bara hvarf...
Gömlu dagana gefðu mér...
Það fer alveg að koma að prófum og verður það áhugaverður tími... ég er ekki alveg að vera nógu undirbúin en vonandi reddast þetta.
Er alveg að fara að taka Máney og Möskva inn, Fannsan og Flame ætla að taka þau fyrir mig í smátíma svo það verði auðveldara fyrir mig að fara með þau í Gröf.
En jámms, ég er að fara í afmæli um helgina, þ.e. ef ég finn pössun ,er ekki alveg að ganga en vonandi reddast þetta... :)
en já, hef svosum ekkert að segja.
If you know it through a wall...
Já nú er ég stödd á Hvanneyri og er á fullu að gera ritgerð... Það er sko svaka fjör skal ég ykkur segja... Júlía mín er dásamlega þolinmóð við mig... Hún er reyndar að deyja úr spenningi þessa stundina því pabbi hennar ætlar að koma á eftir, hún getur hreinlega ekki hætt að tala um hann.
Ég hef nú ekki mikið að segja, er frekar mikið orðin óþolinmóð að komast í jólafrí til að geta tekið inn og komast á HESTBAK... Ég er líka með fiðrildi í maganum þessa dagana af óskiljanlegri ástæðu...
Eydís - eighties... hmm eða ætti ég að kalla mig nineties???


Já svona var gaman um helgina... á eftir að setja inn myndir á fésið... en þetta var allavega heilmikil skemmtun... ;)
En nú er það bara læri læri og svo árshátíð á Hvanneyri næstu helgi... ( Þetta ætlar engan endi að taka )
Það eru að koma jól :)
Annars langar mig í kærasta... Vill einhver byrja með mér??? Ég er rosalega hot og skemmtileg og með persónuleika (spyrjið bara Dóra) og svo á ég gullfallegt barn sem fylgir með mér... :)
Mjög fyndið...
01.09.2005 16:34:55 / eydis
jæja - börn???
já það er nú það... ég er bara ekkert svo viss um að ég ætli að eignast börn... Það er nú búið að klingja þarna niðri í einhvern tíma, sérstaklega þegar ég sé allar þessar óléttu konur útum allt... ![]()
En svo er ég nú búin að vera að heimsækja þessar vinkonur mínar sem eru búnar að vera að drita þessu útum allt og ég verð bara hálfhrædd... Ekki misskilja mig, þau eru alveg ofboðslega sæt og manni langar alveg til að borða þau, en þau eru bara svo lítil og lin, maður getur eiginlega bara ekki haldið á þeim, þau leka bara á milli handanna á manni!!!
Svo kannski spilar það líka inn í að ég verð alltaf hálfhrædd við þau og þá verða þau hrædd við mig og þá fara þau að grenja og svo endar bara með því að ég fer að grenja líka... Ég meina hvaða manni langar að eignast barn með konu sem fer að grenja í hvert skipti sem barnið fer að grenja, og það úr hræðslu við það???
Ég veit hvað margir hugsa núna, en hún vinnur á leikskóla??? en málið er að þar eru börnin farin að labba og maður þarf bara að halda á þeim til að knúsa þau... Kannski ég eignist bara barn, setji það í fóstur í ár og taki það svo aftur???
Hmmm þetta er hugleiðing dagsins... ![]()
Mjög fyndið... tíhíhí - mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þarna - ég komst ekki að því fyrr en mánuði seinna að ég væri ólétt...
Uppskeruhátið...
En annars langar mig að koma með smá pælingu - ég er semsagt, til að koma ykkur inn í málið, með rosalega stóran og ljótan maga. Hann bara vill ekki vera inni heldur stendur bara alltaf út í loftið... Sumir myndu segja að ég væri feit en ég kýs frekar að segja að ég sé með óþekkan maga.
Eeeeen allavega þá ákvað ég að kaupa svona unit sem treður maganum inn í mig. Ég og Elísa skundum inn í La sensa og fáum að sjá svona unit - vitiði hvað - það er BARA TIL Í M OG S!!!!!!!!!!! vill einhver, bara einhver, segja mér hvað HELVÍTIS MJÓNUR hafa við svona inn með magann dót að gera??? Til að ýta rifbeinunum upp og búa til brjóst??? Já ég er ekki ánægð - ALLS EKKI ÁNÆGÐ...
En allavega, fórum svo í Debenhams og ég fann drasl þar sem ég get vonandi notað... en allavega, ég vona að ég verði ofsalega hot á uppskeruhátíð...
Sjáumst hress Eydís Ósk
p.s. féll í erfðafræði, það var svosum viðbúið...
verst að hafa fallið með 4,7
Kalt... :)






Jæja - langt síðan síðast...
Héðan er allt fínt að frétta, verst ef það er að koma hríð og ég kemst ekki heim um helgina... Ég ætla að fara að vinna á sláturhússlútti og vonandi verður fjör...

Ég er að undirbúa STÓRAN STELPUVIÐBURÐ - svo stelpur, þið skulið fara að vera góðar við mig... Hef sagt nokkrum frá þessu ( og þær ábyggilega fullt ) en allavega þá er ég að endurskipuleggja allt og ætla að bjóða ÖLLUM sem mér finnst skemmtilegar...

En jámm - ætla að læra...
Heyrumst...
Myndir dagsins er, sælla minninga, frá Fuertaventura... Til að hleypa hlýju til ykkar...
