Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Síðasti sjens að kyssa dívu...

04. maí 2008 klukkan 21:03
Hæ hæ allir saman...
Ég segi bara ágætt en þið? ég er að mygla hérna á Hvanneyri að reyna að læra og barnið mitt er fyrir norðan... búhúhú Ég hef aldrei verið svona lengi frá henni og ég á eftir að vera frá henni í 5 daga í viðbót... ekki gaman

Ég er líka orðin mjög þreytt á lygum - af hverju lýgur fólk endalaust og af hverju er alltaf sagt eitt og gert annað? oj bjakk - þetta bara getur ekki gengið

Annars var síðasta dívusýning um helgina - hún var mjöööög skemmtileg... Tók líka þátt í ræktunarbússýningu fyrir Grafarkot - mjög fínt... en já bæjó

Jei jei

22. apríl 2008 klukkan 11:04
Alveg að fara norður á krókinn á tekið til kostanna... jei jei...
Alveg að fara að verða bráðum búin að gera allt fyrir skeifukeppni... jei jei
Eða kannski ekki... úff
En allavega SKYLDUMÆTING á krókinn um helgina og horfa á hinar sívinsælu dívur

Mamma, ég fara í gandskassann...

16. apríl 2008 klukkan 11:00
héðan er allt fínt að frétta, maður er á fullu að undirbúa skeifudaginn sem er í næstu viku hérna á Hvanneyri og svo er maður að læra, hugsa hvernig maður á að meika reikningasúpuna og hvernig ég á að lifa og hvernig ég á að redda okkur familíunni út mánuðinn...
En annars er bara allt gott sko, það var rosa fjör á söngvarakeppni en ég var að vinna þannig að mér til mikillar gleði þá þarf ég ekki/ má ekki skrifa um allt sem gerðist - bundin þagnareið skiljiði - þannig að þið verðið að tala við einhverja aðra...
Ég er búin að taka stóra ákvörðun í mínu litla lífi - ég er að fara að taka tvær B.S. gráður í einu Búvísindi og Hestafræði - hehe ég verð alveg sprenglærð þegar ég er búin. Ég bara gat ekki ákveðið mig þannig ég ákvað bara að taka báðar deildirnar... það er ekki slæmt HA? að vera með tvær B.S. gráður...
En allavega, verið að fara að skíra hjá Kollu og Ragga næstu helgi og ég get ekki beðið, hvað skildi Ómar Ragnarsson heita eiginlega??? Ohhh þetta er svo spennó...
Svo er tekið til kostanna í vikunni þar á eftir og þá verður sko fjöööör
Ég hef svosum ekkert meira að segja...
Hei jú ég mundi allt í einu eitt - ég keypti disk handa Júlíu - hann heitir hmm uppáhaldsljóðin okkar minnir mig, sem er ekki frásögufærandi nema að þar er eitt ljóð sem að Sveppi syngur, voða skemmtilegt lag og Júlía alveg að fíla það... Nema hvað það er einhvern veginn svona, Fjölleika Fúsi í fjölleikahúsi, kátur og blabla bla... svo hægist á laginu og Sveppi syngur, "heim á kvöldin kemur, krakkana sína LEMUR og sorglega vísu kveður"!!!!!!!!!! þú veist, hvað er aaaaaaaaaaaðððððððð er þetta ekki barnavísa??? Endilega, segjum börnum að trúðar séu vondir við börnin sín og svona, ég bara næ ekki upp í nösina á mér...
En jæja bæ

Snillingur skal ég ykkur segja...

08. apríl 2008 klukkan 16:35
Einn af mínum uppáhaldsmönnum í gegnum tíðina hefur verið hann Sverrir Stormsker... Þessi maður er hreint út sagt snillingur... Ég hef mikið fylgst með blogginu hans og hlæ mig yfirleitt alltaf máttlausa við lesturinn... en allavega ætla að skella inn smá broti frá færslu hjá honum...
Þessi færsla byrjar semsagt á því að hann er að segja frá því þegar Davíð Oddson varð fimmtugur gaf Sverrir honum málverk eftir sig sem er af krullum og heitir verkið "loftmynd af Davíði Oddsyni"


Loftmynd af David Oddssyni Þegar Davíð Oddsson varð fimmtugur 1998 gaf ég honum málverk eftir mig sem ég hafði verið með á málverkasýningu sem ég hélt á Gallerí Borg 1993. Þetta snotra raunsæismálverk er af krullum og aftur krullum og engu nema krullum og ég skírði verkið “Loftmynd af Davíð Oddssyni.”

Kallinn var svo ánægður með þessa gjöf að hann tókst á loft og ég hélt að hann ætlaði að snappa og fara að gera mig að menntamálaráðherra eða forseta hæstaréttar eða eitthvað svoleiðis. Hef ekki séð hann svona sælan á svip síðan hann missti 5 aukakíló þegar hann fór í klippingu fyrir 30 árum.

En allavega hér er restin af blogginu sem er um þegar Davíð varð sextugur núna í janúar...

10 árum eftir að Dabbi varð fimmtugur þá varð hann sextugur og sá atburður gerðist þann 17. janúar síðastliðinn. Hann hélt uppá afmælið sitt í Ráðhúsinu í tjörninni og þar hafði hann myndina góðu uppá vegg til sýnis fyrir veislugesti og talaði fallega um hana í frábærri afmælisræðu sinni. Myndin er svo nákvæm og svo sláandi lík honum að hún er einsog ljósmynd og það kæmi mér ekki á óvart að hann hafi látið smækka hana og notað í ökuskírteinið sitt. Þegar Dabbi var utanríkisráðherra og mikið í útlandinu þá hefur Ástríður kona hans örugglega haft mynd af málverkinu í veskinu sínu til að muna hvernig hann liti út.

Í byrjun þessa árs talaði Dabbi um það í viðtölum að það væri búið að taka úr honum ógrynnin öll af líffærum og það væri ekki mikið eftir nema einhverjar lappir og krullur. Jú og blá hönd. Í fyrstu hélt ég að Atkins kúrinn væri ekki að virka og að þetta væri hans eina raunhæfa leið til að grenna sig en svo áttaði ég mig á að hann hafi verið fárveikur og að þetta hefðu verið svona frekar bráðnauðsynlegar skurðaðgerðir.

Stormsker og Dabbi 17.01.08 Þar sem ég kann ekki við að gera grín að veikindum fólks, því allir geta jú veikst nema Ólafur F. Magnússon, þá ákvað ég að gefa Dabba líffæragjafakort í sextugsafmælisgjöf. Hann ljómaði í framan einsog tungl í fyllingu, líkt og hann hefði verið að hækka stýrivexti. Hann hefði ekki getað orðið hamingjusamari jafnvel þótt Ólafur Ragnar hefði orðið fyrir eldingu.

Hann horfði á líffæragjafakortið og hugsaði líklega með sér: “Mikið er þetta hugulsamt af honum Sverri. Hann gefur mér líffæragjafakort þar sem hann býðst til að selja mér líffæri. Hjartnæmt. Það vantar eitthvað mikið í mig, en nú hefur Sverrir reddað því.”

Svona var kortið, innrammað og glæsilegt:

Líffæragjafakort til handa Davíð Oddssyni sextugum

Gegn framvísun þessa korts á hvaða spítala sem er getur þú farið fram á að eftirfarandi líffæri verði tekin úr Sverri Stormsker og grædd í þig eða á, gegn vægri þóknun:

Nýra (347.990 kr. með virðisauka)

Lifur, án teljandi skorpu (532.999 kr)

Hrogn (verið að kanna málið)

Heilafrumur (799 kr stykkið meðan byrðir endast)

Hjarta (verið að kanna hvort það sé til staðar)

Tóneyra (439.990 kr stykkið)

Getnaðarlimur (276.990 kr metrinn)

Hönd, helblá og nett (258.990 kr. stykkið. Aðeins tvær eftir)

Heili (39 kr, enda svo gott sem á síðasta snúningi)

Með vinsemd og virðingu

Sverrir Stormsker

Hann er náttúrulega brilljant og ég heiti því hér með að ef að Urta eignast hestfolald í vor skíri ég það Stormsker!!! Ég heiti því og stend við það... Svalur

úje

01. apríl 2008 klukkan 23:08
jámm helgin var bara fín... Ég kom norður á fimmtudeginum og fór beint á Blönduós á Dívuæfingu... Síðan á föstudeginum var skellt sér aftur á Blönduós og þá var það sýningin á Blönduósi þetta árið... Það gekk að mestu vel, svoldið um villur hér og þar en vonandi lagast það þegar við komum í stærri höll... Það hefur farið ólýsanlega í taugarnar á mér að horfa á vídeó af mér á hestbaki því það er eins og ég sé ekki á baki heldur bara brjóstin mín þar sem að það sést ekki í mig fyrir þeim... Ég hef mikið pælt í þessu og bara ekki geta þolað það og meira að segja veigra ég mér við því að láta taka vídeó af mér á hrossunum mínum sökum þessa viðbjóðs...
Og til að kóróna þessa minnimáttarkennd mína kom Dagný frænka hans Loga til mín á sýningunni og sagði - hvenær eruði júllurnar að sýna á eftir??? ég bara ha??? já þú veist ég sé aldrei neina hesta eða show - ég sé bara risajúllur hossast... Og ég benti henni á - ekki mjög kurteislega - að ég væri sú eina með ógeðsrisabrjóst og þess vegna væri hún að tala um MIG... Svo þetta æsti mig enn meira að gera eitthvað í mínum málum...
Þannig að eftir miklar pælingar - reyndar áður en Dagný tjáði sig - komst ég að lausninni og hún var ÆÐISLEG - það var eins og skýjunum létti af himninum, sólin færi að skína og ég gat horft upp aftur!!!
Ég fór í apótekið og keypti mér 6 metra langt teygjubindi!!!!!!!!!!!!!! Og vitiði annan eins draum hef ég ekki upplifað í langan langan tíma... Þannig að stuttu fyrir atriðið okkar fórum við Gudda inn á kaffistofu í hesthúsinu sem við vorum með og ég úr að ofan - öllu nema íþróttatoppnum og reyrðum ógeðin niður - FAST... Þetta var æði gæði skal ég ykkur segja, ég gat reyndar ekki andað og ekki beygt mig, en mér er SAMA ég gat riðið um höllina eins og ein af dívunum og alveg án þess að ógeðin myndu slást í andlitið á mér (okei kannski smá ýkt)... OMGS eins og gelgjurnar myndu segja, þetta var heaven...
En að öðru, á laugardagskveldið var smalað saman í spil og mættum við þar galvösk að spila, ég, jóhanna, gudda, fanney, logi, rakel, alma, inga rut og steini... Logi var reyndar allan tímann í pool en við hin í partý og co... Þetta var hin mesta skemmtun fyrir utan örlitla truflun frá fullum gamalmennum en ekkert til að böggast... Steini og Inga Rut brilleruðu og ég held það sé langt síðan að ég hef hlegið jafn mikið, ég mæli hiklaust með þeim í spil... Þau voru æði... Svo var brunað í eftirpartý - mjööög langt síðan ég hef látið sjá mig í svoleiðis, það var bara gaman,nema að vinnukonan á Gauksmýri, ein af þessum margfrægu, var að reyna við manninn minn... En ég treysti á það að hann hafi sagt henni að hann ætti miiiiiiklu fallegri konu heima, allavega konu með miiiiiklu stærri brjóst... Glottandi
en allavega ég er búin að rugla of mikið núna, er að pæla að fara að lúlla, ég og Júlía erum nefnilega bústjórar í Gröf - ofsagaman

Páskar

25. mars 2008 klukkan 18:29
jei jei páskar voru að mestu skemmtilegir... Ég ákvað reyndar að leggjast í upp og niður og greinilega allir sem komu nálægt mér... Einnig var ég með einhverja ógeðs augnsýkingu en það er allt í lagi - hmm svona eftir á...
En margt var brallað um páskana, ég er búin að vera mjög dugleg með hrossin mín og mjöööög dugleg sérstaklega með tryppin mín tvö, Máney og Möskva. Það er búið að járna þau og svo í gær tróð ég Guddu minni á bak á Möskva og teymdi hana fram og aftur í hesthúsinu og gekk bara vel.
En aftur að páskum... Ég fór í skírn hjá Elísu og Vigni og eins og ábyggilega allir vita var lillan skírð Viktoría Elma og svo brunaði ég norður með Júlíu á laugardagskveldinu. Júlía fór til Stellu og ég skellti mér í afmæli hjá Ingibjörgu á Ósi. Það var sko rosalega mikið fjör þar og vorum við að, ég, Brynja, Gveðjón og Ingibjörg alveg til sex... Þá píndi ég Ragga mág til að sækja mig.
Hehe svoldið fyndið það að ég komst að því á laugardaginn eftir þennan að ég er bara ekki svo minnug eftir fyllerí eins og ég hélt...
Ég fór nefnilega á Ós aftur og þá var mér sýnt tvö vídeó síðan í afmælinu, vídeó sem ég man EKKERT eftir... ég bara skil þetta ekki, þetta eru ekki skemmtileg videó, ekki að mínu mati allavega, á öðru erum við að rökræða nafnið á Júlíu og ég er semsagt að tala í myndavélina og svoleiðis að segja allt með ákvörðunina á nafninu og blabla...(og ég er eiginlega bara röflandi) hehe en á hinu sitjum við Gveðjón að ræða eitthvað óskaplega mikilvægt greinilega og svo sé ég myndavélina og segi svona ýmislegt sem ég ætla ekki að hafa eftir hér... (ennþá röflandi)
Ég man bara EKKERT eftir þessu og ég bara skiiiil það ekki - þá fór ég að pæla, kannski man ég bara ekki eftir fullt af hlutum sem hafa gerst á fylleríum??? kannski sagði ég þetta við Dr. sexý??? hmmm þetta er pæling... ég ætla allavega að passa mig í framtíðinni...
Johnny and the rest er band sem að allir EIGA AÐ ÞEKKJA - þetta eru mjööööög miklir snillingar skal ég ykkur segja... Þeir voru að spila á laugardagskveldinu og þeir voru eiginlega bara rosalega rosalega rosalega góðir... Og vá stemmingin sem myndaðist... hún var bara eiginlega geggjuð skal ég segja ykkur... Alveg rosalega skemmtileg... Reyndar eyddi ég seinnipartinum af ballinu í það að vera afskiptasöm... Ég veit Þorri, þetta er sjúkdómur...
Hvað finnst ykkur? skoo kærasti vinkonu minnar hegðaði sér mjög ósæmilega en tókst samt ekki að gera neitt held ég, sökum afskiptasemi minnar, reyndar hvarf í einhvern tíma... en allavega er ég vond að vera að skipta mér af? Ég hef ekki þorað að segja neitt ennþá en hvað veit maður á maður að gera það eða ekki??? æi ég veit ekki, ég er alltaf að lenda í klandri sökum afskiptasemi minnar, en ég hugsa alltaf um "það sem þú vilt að aðrir gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra"  og ég meina, ég myndi vilja fá að vita... en hvað veit maður...
en jæja þetta er orðið svo langt að enginn nennir að lesa, verð líka að fara að elda, Fanney og Logi eru að koma í mat vííííí svo langt síðan ég hef séð þau...
jæja bæ

Hjátrú...

19. mars 2008 klukkan 14:44
Hérna ég var að pæla... er eitthvað að liði sem er með hjátrú???
Ég er með ýmsar skrítnar hjátrúr eins og til dæmis að þegar ég hlusta á sjónvarp, útvarp eða eitthvað rafræki, þá VERÐUR volume-ið að vera á sléttri tölu... Þetta er orðin svo mikil árátta í mér að ég man alltaf eftir þessu sama hvar ég er og hvað ég er að gera...
En ég er kannski ekkert svo rosalega viss um að þetta sé hjátrú, ég er bara svo viss um, sökum minnar einskæru heppni gengum tíðina, að eeeeef ég gleymi að hafa á sléttri tölu og er að keyra að þá auðvitað myndi ég keyra útaf - og þá (er sko oft búin að sjá þetta fyrir mér) meðan ég er að velta þessar 30 veltur niður risahlíðina þá lít ég á útvarpið sem er að spila Is this the end með Creed og sé að auðvitað AUÐVITAÐ er útvarpið stillt á SJÖ!!!!!!!! Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur??? Þetta væri svo týpísk mín heppni að það er ekki eðlilegt...
En annars sko var eitthvað annað sem að ég ætlaði að skrifa um en eg hreinlega man það bara ekki... Þannig að þangað til næst...
p.s. afskaplega hommaleg síða þar sem að ég þarf að finna eitthvað skrítið til að setja inn myndir... ég kann ekki svoleiðis...

Jáhh góðan daginn

17. mars 2008 klukkan 17:26

jæja ég gafst upp á blogginu mínu þar sem það vill ekkert fyrir mig gera... er helst hrædd um að það hafi fengið nóg af mér og mínum pælingum og algjörlega nóg af mér þegar ég skrifaði Guido færsluna góðu... en allavega veriði velkomin í minn hugarheim, sem oft er kallaður geðveiki... Hlæjandi