Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

HJÁLPAÐU MÉR UPP - MÉR FINNST ÉG VERA AÐ DRUKKNA

26. maí 2008 klukkan 22:53
Bob Marley
Ég sendi hér með út MAJOR hjálparbeiðni!!! Mig vantar einhvern / einhverja til að hjálpa mér að leggja lokahönd á þrif og flutninga á Hvanneyri - þeir sem eru svo yndislegir og góðir að koma með mér og hjálpa mér fá að launum ógleymanlegt roadtrip með mér og boð í afmælisveislu barnsins míns (er sko alltaf með ógeðslega góðar kökur)  sem er BY THE WAY  að verða tveggja ára á laugardaginn... Vá hvað tíminn líður hratt...
Ég verð líka að deila með ykkur nýjustu gleði minni... Hann Bjöggi minn sem er mitt uppáhald þessa dagana, gaf mér svona plakat af Bob Marley - alveg eins og þessa mynd!!! Ég suðaði oft um hana hérna fyrir nokkrum árum og nokkrir aðrir víst líka. Haldiði svo bara ekki að þessi elska hafi sagt mér að koma við heima hjá sér þar sem hann væri með gjöf handa mér - ég var alveg græn og svo þegar hann kom með plakatið, já ég get eiginlega ekki líst tilfinningum mínum... Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér þykir vænt um þetta - það getur eiginlega enginn ímyndað sér það...
Fyrir ykkur sem hugsið - hmprf plakat - hvað er svona merkilegt við það??? SCREW YOU - ALL OF YOU

En annars er lífið bara eins og það er - ciao

"Le woman fucka"

19. maí 2008 klukkan 13:42
Kossallir að skoða
Jæja kannski maður skrifi smá fyrst maður er fastur inni eins og fífl...  Ég fór síðastliðinn föstudag á tónleika með JET BLACK JOE - það voru held ég barasta bestu tónleikar sem ég hef farið á... allavega hef ég aldrei verið í annarri eins geðshræringu á tónleikum áður, enda fékk Brynja greyið aðeins að finna fyrir því... Ég var bara OMG og vá - hver þarf á karlmönnum að halda og svo reyndar hló hún mikið yfir því hvað ég varð fúl þegar hann tileinkaði lagið Let´s stay together til Rutar Róberts... Oj gubbi gubb - það er ógeðs- flugfreyju- konan- hans... (Reyndar miklu fallegri en ég - en ábyggilega ekki með stærri brjóst )
Ég var líka alltaf bara alveg við það að gráta og hringdi í hina og þessa þegar góð lög voru - Lilja á Hrauninu fékk smá sýnishorn, Fanney Dögg líka og Brissi meira að segja...
Það voru einhverjir efasemdarpúkar sem voru með einhvern skæting út í Gospelkórinn - en vitiði, þessi kór er náttúrulega rugl líka, þvílíkar raddir og svo í laginu You ain´t here þá sungu Edgar Smári og ein ljóshærð upp til helvítis ( ég veit öfugmæli ) og maður var bara með gæsahúð dauðans... Ég get ekki beðið eftir DVD disknum - veit ekkert  hvort hann kemur en það er bara eins gott... Hei já - Sigriður Guðna söng líka og vá hvað það var flott hjá henni...

Jæja ætla að halda áfram að setja inn myndir á síðuna hennar Júlíu Jöru sem steinsefur hérna inn í herbergi... KISS KISS
P.S. Til hamingju með afmælið Fríða Björg

Fleiri myndir...

14. maí 2008 klukkan 19:40
Júlía Jara
Stríða Stellu
Stríðnispúkinn
Ákvað að setja betrumbætta mynd af skrípinu og svo tvær þar sem hún er búin að stela gelraugunum hennar Stellu og ekkert smá montin með það... emjaði úr hlátri þegar ég sá þær...

Júlía Jara

14. maí 2008 klukkan 12:41
Júlía Jara
Ég á svo ótrúlega fyndið barn - henni dettur ótrúlegustu hlutir í hug... Þetta er það nýjasta - hún verður að vera í bikinípilsinu utan yfir sokkabuksurnar sínar... Veit samt ekki alveg hvað þetta er í munninum á henni en allavega - ótrúleg stelpa - vá hvað ég sakna hennar Gráta

I´m going deeper underground

08. maí 2008 klukkan 20:02
Skugga - Sveinn

Jæja stressið farið að segja ansi mikið til sín - er búin að læra stanslaust í 4 og hálfan dag og finnst eins og ég kunni ekki neitt... Það kemur í ljós á milli 9 og 12 á morgun hvernig mér gengur...
En gleðifréttir dagsins eru þær að mor og far - uppáhalds mamma mín og pabbi eru búin að gefa grænt ljós á að ég taki Skugga - Svein heim í sumar og byrji að temja hann og þá get ég séð hvort ég vilji ekki örugglega kaupa hann...
Ekki það að það þarf eitthvað mikið til þess að hann verði ekki góður þar sem að hann er bróðir Kardinála og undan Órator... Hann hlýtur að verða góður...
En jæja wish me luck...

Rose - I love you, specially today

07. maí 2008 klukkan 01:08
jæja, hvernig er það er ekkert að ske þarna úti? ég er ekkert að sjá neitt aksjón í bloggheiminum - hmm er ég kannski sú sem er á milli tannanna á fólki? hmm það er spurning - ég er allavega að drukkna í ketósum, aldósum, hexósum, fituefnum (ætti nú að kunna á þau), sellulósa, sterkjum, og mörgu fleiru í þeim dúr - erfiðast er þó sítrónusýruhringurinn og glýkólýsan...

En ég get ekki beðið eftir föstudeginum, vera búin í lífefnafræðiprófinu og HITTA JÚLÍU... hún er mitt líf skal ég ykkur segja...

Æi ég hef ekkert að segja...

Síðasti sjens að kyssa dívu...

04. maí 2008 klukkan 21:03
Hæ hæ allir saman...
Ég segi bara ágætt en þið? ég er að mygla hérna á Hvanneyri að reyna að læra og barnið mitt er fyrir norðan... búhúhú Ég hef aldrei verið svona lengi frá henni og ég á eftir að vera frá henni í 5 daga í viðbót... ekki gaman

Ég er líka orðin mjög þreytt á lygum - af hverju lýgur fólk endalaust og af hverju er alltaf sagt eitt og gert annað? oj bjakk - þetta bara getur ekki gengið

Annars var síðasta dívusýning um helgina - hún var mjöööög skemmtileg... Tók líka þátt í ræktunarbússýningu fyrir Grafarkot - mjög fínt... en já bæjó