Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

"Le woman fucka"

14. ágúst 2008 klukkan 23:06

er á næsta leiti. Ví hvað það verður gaman. Hjá mér er búið að vera fjör undanfarið, var í staffapartýi á þriðjudaginn og er ennþá að jafna mig. (og ábyggilega einhverjir fleiri) 

Annars erég bara á fullu með hinum gellunum í kvennareiðarnefnd að gera allt klárt, og líka að gera hestana fyrir konurnar mínar ready og svo þarf að flytja þá á morgun og svona - þetta verður svaka gaman vona ég. 

Svo er bara próf próf í næstu viku. vonandi gengur mér betur núna (ef ég myndi fara að drullast til að læra) og svo er ég að fara að flytja - ég er mjög spennt en þó örugglega ekki eins spennt og Einararnir mínir sem eru báðir að fara á límingunum við tilhugsunina að skólinn er að byrja. 

Ég fann bréf áðan sem ég hafði fengið - ohh hvað ég verð stundum pirruð - ég bara á ekki að fá pening með einhverjum öðrum hætti en að þræla fyrir hann - Húnasjóður - neibb ekki fékk ég úr honum, neibb aldeilis ekki enda er ég nú bara einstæð móðir að fara að leigja rándýra íbúð og er að taka tvær B.S. gráður en - JÁ ALVEG RÉTT, ÞAÐ ER ÁBYGGILEGA AF ÞVÍ AÐ ÉG FÆ VAXTABÆTUR!!! hmrpf - það er nú eitt dæmi um peninga sem ég fæ ekki - húsaleigubætur - ég fæ þær ekki af því að ég fæ vaxtabætur, vaxtabæturnar eru bæ þe vei 23.000 á ári!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! jebbs dugar mér mjööög vel og einmitt til að minnka leiguna á mánuði. 

Vitiði, þetta pirrar mig næstum því jafn mikið og frosthringirnir í brauðum dagsins í kaupfélaginu - það er algjör dýrðardásemd þegar maður fer í kaupfélagið, glorhungraður og kaupir sér brauð eða rúnstykki, klöngrast upp stigann aftur og sest, sker í sundur og viti menn FROSTHRINGUR, þurrt og hart brauð - alveg dásamlegt. Ég þramma kolvitlaus niður aftur og húðskammast og greyi liðið bara, en hérna sko þetta er samt brauð síðan í dag. Dásamlegt - ég er einmitt að kaupa það að brauð sem er þurrt og með frosthring sé bara nýkomið úr ofninum. og hana nú!!! (sagði hænan þegar hún lagðist á bakið)

Versló

06. ágúst 2008 klukkan 17:25
Versló var bara helvettttans fín - ég og guddan skunduðum með erfingjana okkar í bústað til M og Ingunnar og erfingjanna þeirra. Það var alveg rosalega gaman og mikið hlegið. Á sunnudeginum var svo farið á ball á Steinsstöðum með Geira Vall og var það hin mesta skemmtun - mér fannst samt eiginlega leiðin fram og til baka skemmtilegust og myndbandið sem við eigum eftir það er eitt það fyndnasta sem ég hef séð.

Annnars er svosum ekkert nýtt að frétta, skólinn að fara að byrja og ég er EINUNGIS í 4 fögum fyrri önnina og svo fékk ég að vita í dag að prófin eru bara í eina viku núna svo það verður sko nóg að gera. En ég er bara orðin spennt að komast frá Hvammstanga þar sem maður heyrir sögur um sinn fyrrverandi alla daga, um allar nýju konurnar og bara loka sig af á Hvanneyrinni sinni með öllum snillunum þar. EKki það að ég á eftir að sakna MARGRA hér og ekki veit ég hvað við Júlía eigum eftir að gera án Tóta kokks og Guddunnar okkar.

En annars get ég ekki beðið eftir haustinu - smala, myrkur, vigta, sónarmæla og fleira í þeim dúr... Svalur

Hvernig var versló hjá ykkur? mig langar mikið að heyra dirty details...