Mama Mia
24. september 2008 klukkan 10:19


Jáhh... mér skilst að ég sé að fara á þessa mynd með pottaklúbbnum mínum - vííí hlakka mikið til... það verða klukkutímar í frí frá lærdómi sem verða mjög vel þegnir...
Ég vil lýsa yfir óánægju minni með árshátíð Þyts, þar sem að mér var tjáð að hún væri seinnipartinn í nóvember og ég skipulegg systkinabarnamót á Kollsá 1. nóv og svo bara kemur á daginn að árshátíðin er bara 1. nóvember... jei
EKKI ÁNÆGÐ
En gleðiefni dagsins er - ÉG ER AÐ FARA HEIM Á MORGUN AÐ ÓMMÆLA LÖMBIN - GET EKKI BEÐIÐ
það verður æði gæði...
Myndir dagsins eru af Vídalín mínum...
Gáta dagsins er:
Madness is like gravity, you know, all you need is a little - push!!!
hver sagði þessi orð og úr hvaða mynd eru þau???
I´m so happy.............
21. september 2008 klukkan 22:35


Haldiði að ég sé ekki bara að fara að fá folald undan þessum tveimur - vííííí - ég er bara búin að safna í ár... þannig að næsta sumar verður magnþrungin spenna :)
jćja...
10. september 2008 klukkan 23:15
nú er keppnin komin niður í þessi þrjú nöfn
Stormskör
Sunna
Salka (gott nafn Rakel ;) )
Endilega kjósið um þessi þrjú nöfn...
Stormskör
Sunna
Salka (gott nafn Rakel ;) )
Endilega kjósið um þessi þrjú nöfn...
jámms...
09. september 2008 klukkan 14:08


Jæja það er kannski kominn tími á blogg??? Ella sagði að ég væri heimsins latasti bloggari, er farin að halda að það sé barasta satt. Ég hef bara eiginlega ekki haft mjög mikið að segja, er búin að vera önnum kafin undanfarið.
Á næsta leiti eru göngur og þá verður fjör - ég get ekki beðið eftir að fá féð af fjalli svo maður geti farið að vigta og svoleiðis fjör. Haustið er uppáhalds tíminn minn, það er algjörlega uppáhaldstíminn minn. Það er svo gaman að fá lömbin af fjalli, sjá þyngdina á þeim og hvernig þau stigast.
En annars hefur bara lítið verið að ske, ég fór á réttarball í Ásbyrgi sem var mjög skemmtilegt. Sólon var mjööög góð og gaman að sjá hversu fullt fólk getur verið.
En annars ætlaði ég bara að láta vita af mér og segja ykkur að ég NÁÐI ÁBURÐARFRÆÐIPRÓFINU víví. Ég er mjög fegin að hafa náð því. Ég bið að heilsa ykkur og ég vel endilega að þið svarið spurningu dagsins.
Spurning dagsins:
Á myndunum hér að ofan sjáið þið litlu hryssuna mína. Hún er undan Urtu og Gretti. Hún átti sko að vera hestur og heita Stormsker en svo varð hún bara hryssa. Ég hef kallað hana Stormskör síðan hún fæddist en er ekki viss hvort það sé nógu gott nafn. Hvað skal hún heita? Mig langaði að láta hana heita einhverju S - nafni, því að bróðir hennar heitir S - nafni, gaman að hafa svona reglu á nöfnum. En annars eru nokkur önnur - ef ykkur dettur líka eitthvað annað í hug, let me know. Þið verðið að svara mér...
1. Stormskör
2. Sunna
3. Sævör
4. Sera
5. Salín
6. Maren
7. Mist
8. Marlín
9. Álfrún
10. Ásvör
Æi og alveg trilljón fleiri - en allavega, gefið mér hint hvað ykkur finnst flottast á hana...
