Uppskeruhátiđ...
En annars langar mig að koma með smá pælingu - ég er semsagt, til að koma ykkur inn í málið, með rosalega stóran og ljótan maga. Hann bara vill ekki vera inni heldur stendur bara alltaf út í loftið... Sumir myndu segja að ég væri feit en ég kýs frekar að segja að ég sé með óþekkan maga.
Eeeeen allavega þá ákvað ég að kaupa svona unit sem treður maganum inn í mig. Ég og Elísa skundum inn í La sensa og fáum að sjá svona unit - vitiði hvað - það er BARA TIL Í M OG S!!!!!!!!!!! vill einhver, bara einhver, segja mér hvað HELVÍTIS MJÓNUR hafa við svona inn með magann dót að gera??? Til að ýta rifbeinunum upp og búa til brjóst??? Já ég er ekki ánægð - ALLS EKKI ÁNÆGÐ...
En allavega, fórum svo í Debenhams og ég fann drasl þar sem ég get vonandi notað... en allavega, ég vona að ég verði ofsalega hot á uppskeruhátíð...
Sjáumst hress Eydís Ósk
p.s. féll í erfðafræði, það var svosum viðbúið...
verst að hafa fallið með 4,7
Kalt... :)






Jæja - langt síðan síðast...
Héðan er allt fínt að frétta, verst ef það er að koma hríð og ég kemst ekki heim um helgina... Ég ætla að fara að vinna á sláturhússlútti og vonandi verður fjör...

Ég er að undirbúa STÓRAN STELPUVIÐBURÐ - svo stelpur, þið skulið fara að vera góðar við mig... Hef sagt nokkrum frá þessu ( og þær ábyggilega fullt ) en allavega þá er ég að endurskipuleggja allt og ætla að bjóða ÖLLUM sem mér finnst skemmtilegar...

En jámm - ætla að læra...
Heyrumst...
Myndir dagsins er, sælla minninga, frá Fuertaventura... Til að hleypa hlýju til ykkar...
How to look good naked...
Eða Look who´s naked eins og Elva vinkona mín segir alltaf...
Þetta eru fáránlegir þættir alveg hreint sko... Hefur einhver séð FEITA konu í þessum þáttum??? Nei hélt ekki, þær eru kannski með smá skvap í byrjun og sama hvað Gock Van eða hvað hann heitir segir, þá pottþétt fara þær í vörkát því þær eru alltaf orðnar miklu mjórri og flottari þegar þær fækka fötum... Hann tekur alltaf mjóar konur og gerir þær ennþá mjórri...
Þannig að þetta er fake eins og allt svona reality dót...
Ég sæi mig í anda spranga um með mitt og mín bara úbbíbú og fínerí... Ég er hrædd um að Gock minn myndi ekki einu sinni nenna að eyða orðunum - " So Eydís, do you look good naked???" nibb don´t think so...
En annars, er að horfa á In plain sight... magnaðir þættir...
Gekk ekki alveg nógu vel í prófi... Er búin að skíta upp á bak í öllu sem ég geri... Sama hvað ég geri, þá bara get ég ekki gert nógu vel... ég gæti gubbað... ég legg endalaust á mig og ekkert, ekkert kemur í staðinn... Bara endalaus vonbrigði og vesen...
En jæja, tuð búið, kem mér í háttinn... Ciao
p.s. verð að koma með smá - ég var að reyna að muna hvaða hópum núkleótiðin í DNA fylgja... Það eru semsagt 4 og ég mundi að A er á móti T og G a móti C. En mundi ekki alveg hvað af þeim eru púrín og hver pýrimidín. Þannig að ég bjó til leik... Þannig var að AgGi á Hörgshóli var púrín... (A-G) hehe og þannig mundi ég það.
Svo í prófinu í morgun, bara hmm já alveg rétt - Aggi er púrín... :)
Prófin eru ađ koma...



Jæja þá eru prófin að koma... aðeins örfáir dagar í fyrsta próf...
Stóðréttirnar voru æðislegar og ballið var GEGGJAÐ... ég myndi setja myndir inn ef það væri ekki HELMINGURINN af liðinu búinn að banna mér að setja myndirnar inn... :(
En já læri smæri er allt sem málið snýst um þessa dagana, er reyndar búin að vera með upp og niður síðan í gærmorgun... það er ekki gaman... Svo er Jaran mín að fara frá mér á morgun og verður í burtu í viku... búhúhú... það verður mjöööög skrítið að vera án hennar svona lengi...
Myndir dagsins eru sýnishorn úr rétt og balli... og þar sést hvað það var rosalega gaman - ég tek fram að ég tók 173 myndir í réttum og af balli... ví og eiginlega allar eru góðar... ;)
Vei...


Ég hlakka svo rosalega til helgarinnar... ég bara hreinlega get ekki beðið... Það verður svo gott að hugsa um annað en að læra... Ég er einmitt búin að ver aá fullu núna til þess að ég geti skemmt mér aðeins um helgina... nú á ég bara eftir að fínpússa einn fyrirlestur og er að pæla að fá að flytja hann á morgun í stað þess eftir viku... Svo á ég bara eftir að gera einn fyrirlestur og tvær ritgerðir og þá er þetta komið...
Helgin verður, ef allt fer eins og það á að gera, þannig að á föstudaginn ætla ég í stóðsmölun með Guddu minni og Hjöddu minni líka... svo á laugardaginn ætla ég að sleppa réttinni til að læra svo ég geti farið á afmælið hennar Anítu á laugardagskvöldið og svo á BALL... jei það verður svo gaman...
En ég var á msn í morgun og þá komst ég að því að það er snjór heima!!! það verður skrítið að fara heim og sjá snjó... ég get eiginlega ekki beðið...
Myndir dagsins eru frá Ingunni sem hún sendi mér í gegnum msnið til að ég gæti séð snjóinn... ví
kuldakveðjur af Eyrinni...
Dísa
