Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

If you know it through a wall...

26. nóvember 2008 klukkan 10:43
You know it to well... ;) mjög fyndin setning...

Já nú er ég stödd á Hvanneyri og er á fullu að gera ritgerð... Það er sko svaka fjör skal ég ykkur segja... Júlía mín er dásamlega þolinmóð við mig... Hún er reyndar að deyja úr spenningi þessa stundina því pabbi hennar ætlar að koma á eftir, hún getur hreinlega ekki hætt að tala um hann.

Ég hef nú ekki mikið að segja, er frekar mikið orðin óþolinmóð að komast í jólafrí til að geta tekið inn og komast á HESTBAK... Ég er líka með fiðrildi í maganum þessa dagana af óskiljanlegri ástæðu...

Eydís - eighties... hmm eða ætti ég að kalla mig nineties???

18. nóvember 2008 klukkan 00:09


Já svona var gaman um helgina... á eftir að setja inn myndir á fésið... en þetta var allavega heilmikil skemmtun... ;)

En nú er það bara læri læri og svo árshátíð á Hvanneyri næstu helgi... ( Þetta ætlar engan endi að taka )

Það eru að koma jól :)

11. nóvember 2008 klukkan 12:58
Hellú... hér er ég komin á Hvt og það er æði gæði... en annars hlakka ég mikið til jólanna, er búin að laumast einu sinni og hlusta á 2 jólalög og það var æðislegt...

Annars langar mig í kærasta... Vill einhver byrja með mér??? Ég er rosalega hot og skemmtileg og með persónuleika (spyrjið bara Dóra) og svo á ég gullfallegt barn sem fylgir með mér... :)

Mjög fyndið...

06. nóvember 2008 klukkan 12:18
Var að skoða gamla gamla bloggið mitt og rakst á þessa færslu... sem er ekki frásögu færandi nema að þegar ég skrifa hana þá er ég ólétt og veit bara ekki af því...

01.09.2005 16:34:55 / eydis

jæja - börn???

já það er nú það... ég er bara ekkert svo viss um að ég ætli að eignast börn... Það er nú búið að klingja þarna niðri í einhvern tíma, sérstaklega þegar ég sé allar þessar óléttu konur útum allt... :o

 En svo er ég nú búin að vera að heimsækja þessar vinkonur mínar sem eru búnar að vera að drita þessu útum allt og ég verð bara hálfhrædd... Ekki misskilja mig, þau eru alveg ofboðslega sæt og manni langar alveg til að borða þau, en þau eru bara svo lítil og lin, maður getur eiginlega bara ekki haldið á þeim, þau leka bara á milli handanna á manni!!! :S Svo kannski spilar það líka inn í að ég verð alltaf hálfhrædd við þau og þá verða þau hrædd við mig og þá fara þau að grenja og svo endar bara með því að ég fer að grenja líka... Ég meina hvaða manni langar að eignast barn með konu sem fer að grenja í hvert skipti sem barnið fer að grenja, og það úr hræðslu við það??? :S Ég veit hvað margir hugsa núna, en hún vinnur á leikskóla??? en málið er að þar eru börnin farin að labba og maður þarf bara að halda á þeim til að knúsa þau... Kannski ég eignist bara barn, setji það í fóstur í ár og taki það svo aftur???

 Hmmm þetta er hugleiðing dagsins... 8|

Mjög fyndið... tíhíhí - mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þarna - ég komst ekki að því fyrr en mánuði seinna að ég væri ólétt...