Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriðadóttir
  • Staður: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Það eru aðeins 11 dagar...

28. janúar 2009 klukkan 11:20
Þar til ég fer á Hvanneyri - víííííí......... ég er farin að hlakka ansi mikið til að komast á Eyrina mína og hitta allt fólkið mitt... Júlía spyr á hverjum degi hvar Eyrún hennar sé og vill bara fara á Hvanneyri þar sem hún á HEIMA... Í dag eru kosningarnar í skólanum og Lilja mín fær sko mitt atkvæði sem aðalkjelling skólans... Kiss 

Annars er lítið að frétta, dagur 11 í áfengisbindindi og dagur 11 í karlmannsbindindi. Þetta er allt að massast hjá mér og þetta verður held ég bara peace of cake... Um helgina er ég að pæla kannski að fara á ball í Víðihlíð eftir þorrablótið og keyra hana Guddu mína sem er ekki í áfengisbindindi og ég giska á að hún fari ekki einsömul heim ef ég þekki hana rétt... Tongue out

Tamningar ganga alveg hreint glimrandi, Máney mín er svo yndisleg og þæg og það er allt eins og blómstrið eina. Spes er í dúndurfjöri alveg að springa úr vilja... Möskva hef ég lítið riðið þar sem dottið var undan honum þegar ég fékk hann en vonandi lagast það í dag því Eiríkur ætlar að koma og járna í dag.

Ég er búin að vekja mikla lukku undanfarið hjá Hvammstangabúum. Þetta er alveg æðislegt, allir saumaklúbbar, prjónaklúbbar og hittingar yfir höfuð eru að tapa sér þessa dagana. Ég er að leika við UNGLINGA... þetta er rosalegt og annað eins hefur ekki sést í ár og aldir... Hvammstangi mun held ég bara aldrei jafna sig á þessari hegðun í mér... Ég er sko þokkalega með gráa fiðringinn... Þetta er samt fyndið þar sem að ég og Fanney Skúla erum búnar að vera góðar vinkonur í nokkur ár og ekkert sagt við því, enda er hún nottla alveg HEILU ári eldri en Sara og co. Einnig leik ég oft við Önnu Dröfn og fleiri, en það er nottla heldur ekkert mál þar sem að hún er frænka mín...

Þetta er afskaplega fyndið allt saman og ég vona að ég hafi ekki hneykslað liðið of mikið (hef reyndar heyrt að ég hafi gert það) en ég vil bara þakka Söru og co fyrir mikla og góða hjálp undanfarið, þau eru búin að hjálpa mér að gefa, moka og passa Júlíu ef ég á þarf að halda...Kiss Ég er samt ekki alveg vond þar sem að ég bíð þeim að borða í staðinn og margt annað (nei Gunni, ekki svoleiðis)...

Ég bið ykkur vel að lifa - the grey feather is over and out...

Minningargreinin...

25. janúar 2009 klukkan 22:00
Hérna er upprunalega minningargreinin mín...

Elsku Tryggvi minn. 

Hér sit ég grátandi og hlusta á Söknuð með Vilhjálmi Vilhjálmssyni og hugsa um þig. Ég hugsa um allt sem við höfum gert saman. Í kvöld sátum við fjölskyldan saman og horfðum á gömul myndbönd. Við sáum fjöruferðina góðu og einnig ferðalagið sem við fórum á strandirnar. Þetta voru ómetanlegar stundir og ótrúlega gaman að rifja þetta upp. Þú varst ótrúlega þolinmóður við okkur stelpurnar þótt við værum allar að hnoðast á þér í einu. Alltaf þegar þú settist í stólinn þinn í stofunni í Gröf var ég ekki lengi að skríða í fangið á þér og kúra þar. Eitt myndband sáum við líka, það voru smalamennskur frá því 1991. Það var rosalega gaman að sjá þig þeysast um á Neista í brúna hnakknum þínum og með hreppstjórahúfuna góðu.

Ófáum stundum eyddum við í fjárhúsunum á haustin og ég man alltaf hvað við systur vorum rosalega ánægðar þegar þið Stella gáfuð okkur Þrennu, móflekkóttu gimbrina sem við fengum að eiga saman. Ég var líka svo rosalega montin þegar þið gáfuð mér Revíu, svarflekkóttu gimbrina sem ég var búin að horfa á allan tímann meðan við vorum að vigta.

Ég er svo rosalega þakklát fyrir að hafa geta verið með ykkur Stellu allan síðast sauðburðinn í Gröf, þótt oft á tíðum hafi hann verið frekar erfiður, sérstaklega þar sem þér fannst við Stella vera óttalega vitlausar oft og frekar stjórnsamar.

Ein minning er mér mjög ofarlega í huga og það er þegar ég sat við eldhúsborðið í Gröf og þú komst í rólegheitum eins og þú varst vanur, labbaðir að glugganum, horfðir út og sagðir, Eydís, þú veist þú átt Vakningu. Ég varð orðlaus og sagði, ha? Þá sagðir þú aftur, alveg jafn rólega, þú veist þú átt Vakningu. Ég trúði þessu ekki og sagði aftur ha? Þá sagðir þú mér að þið Stella hefðuð ákveðið að gefa mér hryssuna sem ég dýrkaði. Ég man að ég varð svo rosalega ánægð og stökk á ykkur og kyssti ykkur. Þú sagðir að hún ætti að vera hjá einhverjum sem myndi nota hana og hún ætti vonandi eftir að reynast mér vel, sem hún hefur sko gert.

Í seinni tíð var ég rosalega mikið hjá ykkur Stellu. Ég var alltaf með hesta á járnum í hesthúsinu í Gröf. Þú komst reglulega til mín í hesthúsið þegar þú varst í göngutúrum með hundana. Alltaf kíktirðu inn, gafst mér knús og kysstir mig og sagðir, þetta er ekki slæmt. Svo röltirðu um hesthúsið, klappaðir Jarp og hinum líka og þegar þú komst að Mósa sagðirðu, þennan hest hlýt ég að eiga, hann er svo fallegur. Þegar ég var á útreiðum og hitti þig einhversstaðar á leiðinni, þar sem þú sóttir alltaf póstinn, sagðirðu alltaf það sama, ertu að fara langt? Og oft eftir að ég svaraði þér fylgdi einhver skemmtileg saga frá því þegar þú varst að temja sjálfur. Ég man alltaf eftir sögunni um stóðhestinn þinn, Jarp, sem þú reiðst um fjöll og fyrnindi og líka sögunni þegar þið böðuðuð hrossin í sjónum við lúsinni. Þessar sögur og heilmargar aðrar eru búnar að rifjast upp á síðustu dögum og eru mér ómetanlegar.

Það er ótrúlegt hvað þú hafðir gott lag á dýrum, Kappi var eins og skugginn þinn og ef þú komst ekki með mér út í hesthús þá kom hann bara ekki með mér. Eins fannst mér ótrúlegt með folöldin að þú gast alltaf klappað þeim og kjassað þau löngu áður en ég komst nálægt þeim. Þú hafðir svo rosalega góða nærveru og folöldin voru svo slök þegar þú komst að tala við þau. Þeim leist ekki alveg á það þegar ég kom með minn brussuskap og fór að tala við þig og segja að ég skildi bara ekki af hverju þau sneru sér bara út í horn þegar ég talaði við þau. Þá bentir þú mér á það að kannski væri betra að vera með minni læti og bara tala rólega við þau. Nú hef ég tileinkað mér þessa ró og það gengur mun betur að spekja folöldin. Þú varst svo fullur af fróðleik um allt sem viðkom dýrum og ég hef lært mikið af þér.

Tilsvörin þín Tryggvi voru stundum alveg hreint ótrúleg. Oftar en ekki sagðir þú þegar þú fékkst þér kaffi að það væri nú betra ef smá koníak væri með. Þér þótti ekki verra ef koníakið læddist út í. Og ég man að Stella sagði mér að á afmælisdaginn þinn þann 3. desember síðastliðinn hefði hún gefið þér koníak í kaffið þitt og þér hefði nú ekki fundist það slæmt. Mér fannst líka svo gaman þegar þú sagðir við mig og horfðir á Stellu, hún er falleg þessi kona. Stella sagði mér líka frá því þegar hún sagði við þig eitt sinn hversu heppin Indriði og Herdís væru með tengdasyni. Þú varst nú ekki lengi að svara um hæl og sagðir að það væri nú ekki skrítið þar sem að Indriði væri svo mikill ræktunarmaður.

Ég er rosalega ánægð að Júlía hafi fengið að kynnast þér og hún hafi fengið svona mikinn tíma með þér. Hún er nú ekki alveg að skilja að Tryggvi hennar sé ekki lengur á sjúkrahúsinu. Það er svo gaman að hún talar alltaf um þig sem Tryggva SINN, hún á þig segir hún og Stella smá.

Ég verð líklega að kveðja þig núna, þótt ég vildi halda áfram að skrifa og skrifa, því einhvern veginn finnst mér ekki eins og þú sért farinn þegar ég er að skrifa þetta. Mér til huggunar þá veit ég að pabbi þinn og Snati hafa tekið á móti þér. Ég er líka viss um að þú hafir tekið á móti Jarpi og þið séuð einhvers staðar saman.

Elsku Tryggvi minn, ég get bara hreinlega ekki lýst því með orðum hversu sárt mér þykir að kveðja þig og ég bara get ekki trúað að ég eigi aldrei eftir að kyssa þig og aldrei eftir að faðma þig og aldrei aftur finna Tryggvalykt. Ég lofa þér að ég skal passa hana Stellu þína eins og þú baðst mig svo oft um að gera og ég veit að þú passar okkur.

Ég er búin að hugsa mikið um þessar 4 setningar í laginu Söknuður, því þær passa svo rosalega vel við líðan mína núna.

 Mér finnst ég varla heill né hálfur maður,

Og heldur ósjálfbjarga, því er verr.

Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður,

Verða betri en ég er.

 

Þín Eydís.

Úti er alltaf að snjóa...

19. janúar 2009 klukkan 12:42
Ekki gráta elskan mín, þó þig vanti vítamín... :)

Já já, ég held ég hætti bara að blogga þar sem að allt sem ég geri þessa dagana er ekki internethæft... tíhí... myndir fara alveg að bresta inn á fésið, vonandi allavega... ég er ekki alveg að koma mér í lærdómsgírinn ennþá, gengur hálfhægt hjá mér... var að kaupa frumulíffræðibókina, hún er ekki nema 1268 bls... ég veit, það er bara tómt rugl sko...

æi ég veit ekkert hvað ég á að bulla, hmm kannski er það útaf því að ég bulla aldrei... Yell

Adios => Eydís hin brjálaða eins og Brynja mín kallar mig...

Hvíl í friði...

14. janúar 2009 klukkan 09:05

Tryggvi og Júlía
Góð saman
Elsku Tryggvi minn... Ég ætla að setja hér inn upprunalegu minningargreinina mína eftir föstudaginn. Ég komst nefnilega að því að það er limit á slögum, 3000 slög. Ég komst að því eftir að ég var búin að skrifa 5.648 slög og ég skal segja ykkur það að það var ekkert grín að taka eitthvað útúr henni.

Undanfarnir dagar hafa verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi mínu en maður sigrast á því eins og öðru. Ég er bara þakklát að hafa getað verið svona mikið með Tryggva mínum og að ég gat verið hjá honum síðustu stundirnar líka. Mér finnst bara ótrúlegt að ég hafi getað farið í upptökuprófið sem var á föstudaginn, sólarhring eftir að Tryggvi dó. Ég held meira að segja, allavega þar til annað kemur í ljós, að ég hafi náð prófinu.

En frá jólum og áramótum er það helst að segja að ég hélt kokteilboðið mitt góða. Ég held að mæting hafi örugglega verið um 60 stelpur, á eftir að telja það saman. Þetta var rosafjör og spurningakeppnin féll í góðan farveg. Spurningarnar þóttu frekar öðruvísi en það er bara gaman. Ég á alltaf eftir að setja inn myndir á Facebook en ég held að ég hafi tekið um 200 myndir.

Áramótin voru fín, ég fór að vinna um eitt og var að vinna til rúmlega þrjú og þá fór ég á ball. Svo skellti ég mér á sjó, eða til Ben, og var þar í partýi til að verða 6 eða eitthvað og þá fórum við heim, ég, Gudda, Siggi Hólm, Jón Ívar og Sunna. Stuttu eftir það lögðumst við til hvílu og ég fór svo um 9 að gefa á Hrísum með minni ástkæru Helgu Rakel og Snæbirni (já já hann er ástkær líka).

Síðustu helgi fórum við á Lindarberg, ég, Kolla, Gudda og Jóhanna. Við tókum okkur til og fórum að þrífa herbergin. Svo höfðum við líka glens og grín og afrakstur þess kemur inn á facebook rétt bráðum líka.

Ég náði öllum prófum um jólin, þótt ég væri einstæð kelling í fullum skóla og vinnu. Ég er mjög stolt af mér og vona að næsta önn gangi jafn vel. Ég er komin með 3 hross á járn, þau Máney, Möskva og Spes. Ég er farin að ríða Máney eins og herforingi útum allt og er hún bara frábær, rúm, viljug og skemmtileg. Spesin mín er alltaf söm við sig, alveg dásamleg. Möskva hef ég bara riðið á milli húsanna því það vantar eina skeifu á hann. EN þetta kemur allt saman.

Jæja, nú er ég búin að skrifa svona smá útdrátt úr undanförnum vikum, ég skrifa meira síðar. Laughing