Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

aaaaalveg ađ koma...

30. mars 2009 klukkan 11:26
Næsta viðtal er aaalveg að koma, er bara að bíða eftir svörum frá næsta viðmælanda... :)

Viđtal...

19. mars 2009 klukkan 23:27

Ég er orðin leið á því að hafa ekkert að segja svo að ég hef ákveðið að taka nokkur viðtöl við merkilegar manneskjur og leyfa ykkur að kynnast þeim aðeins... Laughing Fyrst varð fyrir valinu vinkona mín hún Þóranna Másdóttir... Hún er að mínu mati alveg stórmerkileg kjarnorkukona... 

  • 1. Hvað munt þú heita?

Þóranna Másdóttir

  • 2. Hverra manna og hvaðan ertu? 

Ég er undan Má frá Eyrabakka og Siggu frá Holti í Stokkseyrarhreppi.  Már er undan Bjarney frá Hróarsholti og Ólafi frá Snæfokstöðum.  Sigga er undan Herði frá Holti og Önnu Guðrúnu frá ................Ég er frá Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi hinum forna og núverandi Flóahreppi.

  • 3. Það er stunduð hrossarækt þar er það ekki? Hver eru bestu hrossin sem komið hafa frá ykkur að þínu mati?

Jú þar er búið að stunda hrossarækt í 30 ár.  Bestu hrossin mundi ég telja vera Sjóla sem var heimsmeistari í Danmörku árið 2005. Graðhesturinn Græðir undan Hróð frá Refstöðum.   Svo merarnar Storka undan Kveik frá Miðsitju, Stemma undan Bassa frá Bakka, Auðlind undan Viking frá Voðmúlastöðum, Hemja undan Ham frá Þóroddsstöðum, Gróska undan Huga frá Hafsteinsstöðum, Sletta undan Hilmi frá Sauðárkróki  Þetta mundi ég telja vera svona toppana.

  • 4. Ef þú mættir velja 5 stóðhesta til að halda undir, hverjir yrðu fyrir valinu?

Úff þú segir nokkuð...Mér finnst Auður frá Lundum spennandi, sá hann á meistaradeildinni í fjórgangnum og þar var hann mjög flottur.  Ég væri til í að halda undir Hróð frá Refstöðum, Adam frá Ásmundarstöðum, Dug frá Þúfu og svo væri ég til í að halda undir hann Hökul frá Dalbæ.

  • 5. Hvað ert þú að gera í vetur?

Ég er að stunda nám við Landbúnaðarháskóla Íslands og er að nema Búfræði.

  • 6. Hvað á svo að gera eftir skólann og hverju stefnirðu að í framtíðinni? 

Í sumar ætla ég að vera að vinna í almennum bústörfum í Dalbæ.  Langar voðalega að vera bóndi í framtíðinni.  En annars er voðalega gott að taka bara fyrir einn dag í einu og sjá svo hvað framtíðin ber í skauti sér.

  • 7. Hvort langar þig að búa í sveit eða borg/bæ? Og hvar viltu helst búa?

Ég vil búa í sveit og þar sem að mér líður best...suðurlandinu líklega.

  • 8. Ef þú mættir velja einn stað í öllum heiminum, hvar myndirðu gifta þig?

Í Gaulverjabæjarkirkju.....ég er ekkert gamaldags ;)

  • 9. Á skalanum eitt til tíu hversu hot er ég? Og af hverju segirðu það?

 Þú ert svo góð í að setja ENGA pressu á mann, ég elska það.

Sko þú ert alveg flennifín stelpa og ert mjög myndarleg og þegar þú tekur þig til og hagar þér ekki eins og vitleysingur heldur eins og dama að þá nærðu alveg 8-9 leikandi...en annars ertu 7.  Þannig að Eydís mín farðu að haga þér, sem þýðir hættu að pumpa lofti í brjóstin með þumlinum...það kemur hvort eð er ekkert loft úr honum ;)

  • 10. Hérna koma þrír málshættir, hvernig myndir þú túlka þá?

1. Betri eru kynórar en tenórar.

Miklu skemmtilegra að sitja heima og hugsa um kynlíf heldur en að hlusta á einhverja tenóra syngja.  En svo er auðvitað lang skemmtilegast að stunda bara kynlíf en ekki bara hugsa um það, það er að segja ef að farið er út í þá sálma J

 2. Betra er að hlaupa í spik en kekki.

Tja ég veit nú ekki hvort er skárra en jú ætli að það sé ekki betra að vera smá spikaður heldur en í kekkjum.

 3. Betra er áfengi en áfangi.

Mér finnst gott að taka þetta saman, ég er til dæmis núna í nokkrum áföngum í skólanum og drekk líka mikið áfengi og þetta hefur bara farið vel saman hingað til J

 

 

 

Alkóhól er deyfilyf sem gerir okkur kleift ađ ţrauka lífiđ...

15. mars 2009 klukkan 22:59
Mikil speki í þessum orðum... hér er líka annað spakmæli sem ég rakst á og finnst alveg stórmerkilegt => Snyrtilegt skrifborð er til marks um sjúkt hugarfar!!! Hér sit ég í Hvannrassgati og hef það gott... Ferðin suður gekk vel nema hvað að veðrið var ekkert voðalega skemmtó upp á heiði, en ekkert rosalega leiðinlegt samt... Bara svona garg, við hjónin vorum í samfloti (ég og Gudda) svo það var fínt... Ekkert slúður er að gerast þessa dagana... ég er alltaf að lesa uppáhaldsbloggið mitt annað slagið, bloggið hans Sverris Stormsker... Ætla að fara að hafa viðtöl hérna á blogginu og vekja það aðeins til lífsins aftur... Bestu kveðjur Eydís