Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eydís Ósk Indriđadóttir
  • Stađur: Hvanneyri

Klukkan

Könnun

Er Patrick Dempsey hot?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Viđtal 3

30. apríl 2009 klukkan 20:23

  Næsti viðmælandi minn er stórbóndi hérna í héraðinu...

 

  • 1. Þú munt heita hvað? Og hverra manna ertu og hvaðan?

Gunnar Þorgeirsson, undan pabba og mömmu, Efri-Fitjum í FITJÁRDAL.

  • 2. Þú ert með tonn af sauðfé ekki satt? Hvað eru skjáturnar margar?

64,5 tonn af sauðfé     en í tölu eru þær um 810

  • 3. Hverjar eru þínar aðaláherslur í sauðfjárræktinni?

Rækta fallegar og góðar kindur

  • 4. Talarðu oft við rollurnar þínar? Og ef svo er, um hvað spjallið þið?

Já á hverjum degi og oft á dag, góðan daginn og kveð þær að kveldi

  • 5. Hvað er það klaufalegasta sem hefur komið fyrir þig þegar þú ert í glasi?

Datt og fékk tvo skurði á höfuðið eftir velheppnað fyrsta partý hjá liði 3 sannaðist þar málshátturinn að fall er farar heill

  • 6. Ertu trúaður? Af hverju (eða ekki)?

Trúi á Íslensku sauðkindina hún hefur fætt okkur og klætt í gegnum árin og það ber að þakka

  • 7. Er ekki leiðinlegt að vera alltaf að sæða beljur? Hvernig datt þér í hug að koma þér í þetta starf?

Nei alveg magnað, til að hitta menn

  • 8. Á skalanum 1 til 10 hversu hot er ég? Af hverju segirðu það?

Þú færð 5 bara fyrir það að vera kvenmaður, svo + 2 fyrir að vera sveitakerling, + 2 fyrir að hafa áhuga á íslensku sauðkindinni, + aðrir 2 fyrir að vera í 2good liðinu og tapa fyrir liði 3 Víði-og Fitjárdal. Þannig Eydís þú ert svakalega hott

  • 9. Hvernig stendurðu í stjórnmálum? Hvaða flokk aðhyllist þú og af hverju?

Miðjumaður. Borgarabyltingu Bjargar Sigurðar, hef verið veikur fyrir búsáhöldum í gegnum tíðina.

  • 10. Hér á eftir koma þrír málshættir. Komdu með þín túlkun á þessum málsháttum.

 

# Illu er best ólokið. = Borgar sig ekki að búa til vandræði

 

# Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni. = þyrstur maður þarf að drekka

# Bændur eru bændum verstir og neytendum líka. = bull

# Að vera annar er ekki til skammar. = Þeir sem eru ekki fæddir sigurvegarar verða að sætta sig við að vera í öðru sæti.

 

 

 

Viđtal 2

01. apríl 2009 klukkan 20:24


Annar viðmælandi minn er hún Sæa mín... Laughing

 1.  Hvað heitirðu og hverra manna ertu?

Foreldrar mínir eru Sigvaldi frá  á Dalvík og Sigurlaug frá Kálfshamarsvík.  Pabbi er sonur Sigurveigar frá Kóngsstöðum í Svarfaðardal og Jóns úr Svarfaðardal. Mamma er dóttir Margrétar Pálsdóttur ... undan Kristínu frá Blómstuvöllum en þeir sem þekkja til á Kálfshamri hafa eflaust heyrt um hana Krístínu því meiri kvennskörug var vart hægt að finna. En ég er frá Laugarbakka í Miðfirði. 


2.  
Hvar ert þú að vinna?

Nú já þegar stórt er spurt. Ég vinn í Grunnskólanum á Hvammstanga í  70% starfi og í íþróttamiðstöðinni aðra hverja helgi. Einnig sem stuðningsforeldri hjá félagsþjónustunni og persónulegur ráðgjafi (heitir það á launaseðli). Hef átt það til að taka eina og eina bar eða pizzuvakt hjá Kjartani á Síróp. Í augnablikinu er ég í vettvangsnámi í Hæfingarmiðstöðinni við Skógarlund á Akureyri og er búin þar í byrjun maí.


 
3.  Ertu að læra eitthvað? Ef svo er, hvað ertu að læra og hvað ertu búin með mikið af því námi?

Ég er að læra í þroskaþjálfafræði við Kennaraháskólan sem síðar var Háskóli Reykjavíkur. Ég er á öðru ári. Planið er að útskrifast vorið 2010 en gæti lengst því ég bæti við mig rekstur og sjórnsýslu. Ekki það að ég ætli að vinna við rekstur en það væri eflaust gaman að læra það. 


 
4. Nú ert þú mikill ferðafíkill, hvað hefurðu farið til margra landa? Hvaða land stendur uppúr að þínu mati?

Ég hef örlítið kíkt erlendis en stutt síðan það byrjaði sem sagt 1995 þá fór ég þessa venjulegu ferð til Benidorm og mér hefur aldrei leiðst eins mikið. Ferðamannaiðnaðurinn á þessum sólbaðströndum er ekki fyrir mig, að liggja í sólbaði á daginn og vera á diskótekunum á nóttunni. Nei takk. Ég er meira fyrir að skoða menningu og mannlíf, sögu og mat J

Eftir Spánarferðina skrapp ég til Færeyja sem er alveg frábær staður. Svo fór ég í tjaldútileigu um Þýskaland, Austurríki, Ítalíu, Frakkland. Mjög gaman. Eftir það var ég í Bandaríkjunum, aðallega að læra að stökkva, ferðuðumst aðallega um Florida. Svo fór ég í lestarferð um evrópu, þá var tekið England, Frakkland, Spánn, Mónakó, Ítalía, Grikkland, Austurríki, Sviss, Þýskaland, Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Belgía. Góður tími. Svo þvældist ég um Sri Lanka. Svo vinnutengt, Kanarí og fór með mömmu í verslunarferð til Halifax í Kanada. Með Ingibjörgu til Bandaríkjana í heilaaðgerðina.  Heimsreisan var England, Indland, Tailand, Filippseyjar, Indonesia, Malasía, Ástralía, Nýja Sjáland, Bandaríkin, LA, Las Vegas, New York. Encenada í Mexico. Karbískahafið, Jamaica, Camon eyjar og Cozumel í Mexiko. Svo var það Afríkuferðin góða, Egyptaland, Kenya, Malawi, Tanzania, Zambia, Zimbabwe, Suður Afríka, Botswana. Svo er það ótal skreppitúrar til vinkvenna og manna í heiminum eins og Sviss, Spán, Köben, London svo eitthvað sé nefnt.  Ég myndi helst vilja að búa á Nýja Sjálandi, sem er ekki ósvipað Íslandi nema bara allt er meira, stærri fjöll, fleiri kindur J


5.  
Nú átt þú gullfallegan, frekar óstýrilátan hund sem heitir Garpur. Hversu oft heldurðu að hann hafi stungið af frá þér? Hversu oft heldurðu að hann hafi æst móður mína upp?

Vóóó ef móðir þín er farin að grána (sem ég hef reyndar ekki hugmynd um) þá get ég verið viss um að það sé Garpi að kenna. Hann hefur nokkrum sinnum stungið mig af og oftar en ekki fer hann í heimsókn í Grafarkot en hann er allur að koma til kallinn enda orðin 7 ára. Ég sá myndina Marley and me og það var eins og ég væri að horfa á ævisögu Garps. Suddalega margt líkt með þeim tveim.


 
6.  Nú ert þú hamingjusamlega „gift" honum Brynjari, hver eru framtíðaráform ykkar? Hvað ætlið þið að verða þegar þið verðið stór?

Við ætlum að verða enn stærri hehe, ég ætla að klára þroskaþjálfanámið og hann ætlar að halda sig við sjóinn hvort sem það verði langir eða stuttir túrar. Framtíðaráformin eru að hrúa niður börnum og rækta. Stækka íbúafjölda á Laugarbakka um einhver %.  Kannski ekki alveg strax, það er verið að safna fyrir struparútu. En þegar við byrjum þá ætla ég að ropað út úr mér heillri þjóð.


 
7.  Hver er afstaða þín til lífsins?

Njóta þess á meðan maður hefur heilsu. Fólk á að hætta að nurla peningunum undir koddann, allt í lagi að eiga varasjóð en endilega að gera allt sem þeim langar.  Svo er alltaf best að koma fram við fólk eins og þú vilt að fólk  komi fram við þig.


 8.  Á skalanum eitt til tíu, hversu hot er ég? Og af hverju segirðu það?

Á skalanum eitt til tíu... hmm þá verð ég að segja 9,5 og ástæða þess er að þú ert í flokki fallegustu kvenna sem ég hef séð, já og hitt. Svo líka svo dömuleg og gaman að fylgjast með þér á háum hælum hehe. Jákvæði og  einlægt brosið bræðir hvern sem er.. ó mig auma ég er orðin væmin


 
9. Þú ert með próf í fallhlífarstökki, hvernig er tilfinningin að vera í loftinu með einungis fallhlíf til bjargar? Hvort er skemmtilegra, fallhlífarstökk eða teygjustökk?

Já eitt sinn útskrifaðis ég með AFF próf í fallhlífastökki í Deland í Florida. Og stökk 98 stökk bæði úr flugvélum og þyrlum. Það var góður tími.

Sú tilfinning er æði, vera frjáls eins og fuglinn og láta vindinn leika um þig... bara frábært. Í teygjustökki er maður fastur við einhverja teygju og þú ræðir ekki ferðinni eins og í fallhlífastökki svo þar að auki er þér kippt til baka, skemmtilegt kikk í smá stund en í fallhlífastökkinu ertu lengur að, það er flugvélin svo hoppa út og fellur þú niður á margra kílómetra hraða og endar svo í fallhlíf sem þú svífur í til jarðar og vonast eftir því að lendingin heppnist, annars gæti farið illa.

 10.  Hér koma þrír málshættir, hvernig myndir þú túlka þá?


 Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.

Oft eru ráðamenn ekki alveg réttu mennirnir í starfið, loðir við pólitíkusa


 Oft er grafinn maður dáinn.
   

Hann yrði þá ekki lengi á lífi Dúddinn sem væri grafinn lifandi


Betri eru læti en ranglæti
    

Ranglæti er eitt af því ömulegasta sem til er ... þá er betra að hafa læti.